Í samvinnu við Skáksamband Íslands efnum við til Svæðismóts í skólaskák fyrir Norðurland eystra. Teflt verður um sæti á Landsmótinu í skólaskák á Ísafirði 3-4. maí nk.

Teflt verður um svæðismeistaratitil í þremur aldursflokkum:

1-4. bekk

5-7. bekk

8-10. bekk

Hver skóli á svæðinu má senda keppanda í hvern aldursflokk. Þó ætti að vera pláss fyrir a.m.k. þrjá frá þeim skólum þar sem áhuginn er mestur, jafnvel fleiri.

Teflt verður í Skákheimilinu. Yngsti flokkur hefur keppni kl. 15:00, en eldri flokkarnir tveir kl. 17:00.

Þátttakendur keppa hver fyrir sinn skóla.

Mótsgjald er kr. 1000 fyrir hvern þátttakanda.

Þátttaka tilkynnist til mótsstjóra á netfangið askellorn115@gmail.com fyrir lok dags hinn 3. apríl.

- Auglýsing -