Fidemeistarinn Þorsteinn Þorsteinsson verður með fyrirlesturinn „Stöðumat, hindranir og sóknarfæri“ í Miðgarði í Garðabæ klukkan 19:00 í kvöld.
Þar sýnir Þorsteinn dæmi og fer orðum um það hvað helst einkennir heilbrigt stöðumat, hindranir (blokkeringar) og hvenær er fýsilegt að hefja sókn.
Þorsteinn var nýverið útnefndur FIDE Trainer (FT) sem er ein æsta þjálfaragráða FIDE.
Hann hefur áratuga reynslu af skákmótum hérlendis sem erlendis og af liðsstjórn í Úrvalsdeildinni hér heima.
Í framhaldi af fyrirlestrinum er hefðbundið hraðkvöld. Fyrirlesturinn er ca. klukkutími og því verða hraðskákirnar líklega í mesta lagi 7 umferðir.
- Auglýsing -

















