Íslandsmót skákfélaga hefst núna kl. 19. Sjötta og sjöunda umferð úrvalsdeildar sem fram fara í kvöld og annað kvöld fara fram í sal TR. Faxafeni 12. Að því loknu flyst mótið alfarið í Rimaskóla, Rósarima 11.
Spennan er mikil. KR-ingar leiða með 9 stigum, Fjölnismenn eru aðrir með 7 stig og Eyjamenn þriðju með 6 stig. KR og TV mætast í kvöld og þurfa Eyjamenn nauðsynlega á sigri á halda ætli þeir að halda sér í baráttunni.
TR-ingar eru neðstir en geta bjargað sér með góðum úrslitum í síðari hlutanum. Viðureign kvöldsins gegn Víkingaklúbbnum er þeim ákaflega mikilvæg.
Staðan
Beinar útsendingar (þó með 15 mínútna seinkun) hefjast kl. 19:15.
Pörun er tilbúin. Allar viðureignir kvöldsins eru mikilvægar!

- Heimasíða mótsins
- Beinar útsendingar
- Chess-Results
- Skáklög Skáksambands Íslands (12. grein)
- Reglugerð um Íslandsmót skákfélaga






