Byrjendaflokkur Skákskólans hefjast laugardaginn 9. janúar kl.12.15.
Foreldrum og forráðamönnum er bent á að krakkarnir, 6–10 ára, geta byrjað næsta laugardag á 10 vikna námskeiði sem hefst kl. 12.15 og stendur til kl. 13.15 og fer fram í húsakynnum skólans Faxafeni 12. Gengið inn til hliðar við 66°Norður.
Kennarar verða tveir með hverjum hóp þeir Kristófer Gautason og Leifur Þorsteinsson skákkennari Landakotsskóla, báðir þrautreyndir skákkennarar. Fyrsti tíminn er prufutími og krakkarnir sem ætla að áfram byrja svo á 10 vikna námskeið sem hefst nk. laugardag, 16. janúar 2021.
Þess skal getið að starfssemi Skákskólans fylgir þeim sóttvarnarviðmiðunum um sem skákhreyfingin fylgir: https://skak.is/skaksamband/2020/09/08/uppfaerdar-sottvarnarreglur-midadar-vid-tilslakanir-7-september-2020-2/
- Hvað varðar börn og unglinga þá er vakin athygli á því að 2ja metra reglan og fjöldatakmarkanir gilda ekki um þá sem fæddir eru 2005 eða síðar. En meginreglan í umgengi okkar er samt þessi:
- Eingöngu skákmenn og þjálfarar hafa aðgang að æfingum. Þjálfarar skulu virða tveggja metra regluna við aðra þátttakendur ella nota andlitsgrímu ef ekki er hægt að virða fjarlægðarmörkin.
- Þátttakendur skulu spritta hendur fyrir og eftir æfingar og sama á við um allan búnað. Sameiginlegir snertifletir skulu sótthreinsaðir á milli æfinga og/eða funda. Fækka skal sameiginlegum snertiflötum í skákssal eins og hægt er.






