
Meistaramót Skákskóla Íslands 2021 – undir 2000 skákstigum fer fram við glæsilegar aðstæður í Rúgbrauðsgerðinni 29. og 30. maí nk.
Keppnisskilmálar og skipulag:
Þátttökurétt hafa öll börn og unglingar fædd 2001 og síðar og eru með 2000 elo stig eða minna og hafa tekið þátt í námskeiðum á vegum Skákskóla Íslands á þessari önn.
Mótsstjórn áskilur sér rétt til að bjóða öðrum einstaklingum til mótsins.
*Aðalstyrktaraðli Meistaramótsins er velunnari Skákskólans Agnar Tómas Möller.
*Keppt er í einum flokki. Tefldar verða 9 umferðir eftir svissneska kerfinu.
*Tímamörk verða 15 10. Mótið er reiknað til alþjóðlegra atskákstiga.
*Keppnisdagar eru tveir, 29. og 30. maí nk.
*Keppnisstaður: Rúgbrauðsgerðin, Borgartúni 6.
* Fylgt verður sóttvarnarreglum sem í gildi verða.
Keppt um sæti á HM ungmenna í netskák:
Á þessu móti verður keppt um sex sæti á HM ungmenna í netskák sem fram fer í ágúst nk.
Keppt er um:
- Eitt sæti í HM í Opnum flokki u 16 ára
- Eitt sæti í HM í Opnum flokki u 14 ára
- Eitt sæti í HM í Opnum flokki u 12 ára.
- Eitt sæti í HM í stúlknaflokki u 16 ára.
- Eitt sæti í HM í stúlknaflokki u 14 ára.
- Eitt sæti í HM í stúlknaflokki u 12 ára.
Dagskrá Meistaramóts Skákskóla Íslands mótsins verður með eftirfarandi hætti:
Fyrri keppnisdagur:
- umferð. Laugardagur 29. maí kl. 11. – 11. 45.
- umferð: Laugardagur 29. maí kl. 12 – 12.45.
- umferð: Laugardagur 29. maí kl. 13 – 13.45.
- umferð: Laugardagur 29. maí kl. 14 – 14.45.
- umferð: laugardagur 29. maí kl. 15.- 15.45.
Seinni keppnisdagur:
- umferð: Sunnudagur 30. maí kl. 11. -11.45.
- umferð: Sunnudagur 30. maí kl. 12. – 12.45
- umferð: Sunnudagur 30. maí kl. 13. – 13.45.
- umferð: Sunnudagur 30. maí kl. 14 – 14.45.
Verðlaun:
- verðlaun: ferðavinningur að verðmæti kr. 50 þús.
- verðlaun: ferðavinningur kr. 40 þús.
Besti árangur stúlkna ferðavinningur að verðmæti kr. 40 þús.
Verðlaun keppenda sem eru undir 1600 kappskákstigum:
- verðlaun: Ferðavinningur kr. 40 þús.
- verðlaun: Vönduð skákbók, áskrift eða myndaband að eigin vali.
- verðlaun: Vönduð skákbók, áskrift eða myndaband að eigin vali.
Verðlaun keppenda sem eru undir 1200 kappskákstigum og stigalausir:
- verðlaun: Ferðavinningur kr. 40 þús.
- verðlaun: Vönduð skákbók, áskrift eða myndaband að eigin vali.
- verðlaun: Vönduð skákbók, áskrift eða myndaband að eigin vali.
Mótsstig úrskurða verði keppendur jafnir að vinningum.
Mótsstjórn áskilur sér rétt til að gera breytingar á dagskrá.






