Fjórir skákmenn eru efstir og jafnir að vinningum að loknum fimm umferðum á Meistaramóti Skákskóla Íslands 2021 fyrir skákmenn sem eru undir 2000 elo stigum. Mótið hófst í Rúgbrauðgerðinni í gær við frábærar aðstæður. Þeir Adam Omarsson, Þorsteinn Jakob Þorsteinsson, Benedikt Briem og Ingvar Wu Skarphéðinsson hafa allir hlotið 4 vinninga af fimm mögulegum. í 5.–7. sæti koma Matthías Björgvin Kjartansson, Gunnar Erik Guðmundsson og Sigurður Páll Guðnýjarson með 3½ vinning hver. Tefldar verða níu umferðir eftir svissneska kerfinu og er umhugsunartími 15 10. Mótinu lýkur með fjórum spennandi umferð í dag, sunnudag. Keppendur eru 25 talsins og barist um hin ýmsu verðlaun í þrem stigaflokkum. Mótið er reiknað til at-skákstiga og er raðað eftir þeim stigum í mótinu. Hins vegar munu verðlaunaflokkar taka mið af stigatölu keppenda samkvæmt alþjóðlegum elo-stigum FIDE í kappskák. Yfirdómari er Páll Sigurðsson en skákstjórar/skákdómarar eru Helgi Ólafsson og Lenka Ptacnikova.

Nýbakaður Íslandsmeistari og sigurvegari Meistaramóts Skákskóla Íslands árin 2010 og 2011, Hjörvar Steinn Grétarsson, lék fyrsta leikinn 1. d2-d4, fyrir Gunnar Erik Guðmundsson sem sigraði á Meistaramóti Skákskólans sem haldið var í Viðey í september sl. Styrktaraðili mótsins og velunnari Skákskólans, Agnar Tómas Möller, lék svo svarleikinn fyrir Birki Hallmundarson, 1. … Rg8-f6.






