Benedikt Briem varð einn efstur á Meistaramóti Skákskóla Íslands fyrir keppendur undir 2000 elo stigum sem fram fór um helgina. Benedikt vann allar skákir seinni keppnisdaginn þó hann hafði komist í hann krappan gegn Batel. Ingvar Wu sem varð einn í 2. sæti var jafn Benedikt fyrir lokaumferðina en tapaði þá fyrir Gunnari Erik Guðmundssyni sem varð í 3.–4. sæti ásamt Matthíasi Björgvin Kjartanssyni sem taldist í 3. sæti samkvæmt keppnisskilmálum en úrslit í innbyrðis viðureign þeirra réði því.

Keppt var til verðlauna í stigaflokki keppenda á stigabilinu 1200–1600 elo stig og þar varð Matthías Björgvin Kjartansson hlutskarpastur með 6 ½ vinning. Í 2. sæti varð Benedikt Þórisson með 5 ½ vinning og í 3. sæti varð Sigurður Páll Guðnýjarson einnig með 5 ½ vinning.

Í verðlaunaflokki keppenda með1200 elo stig eða minna varð Birkir Hallmundarson hlutskarpastur en hann hlaut 4 ½ vinning. Í 2. sæti varð Jóhann Helgi Hreinsson sem hlaut 4 vinninga. Í 3.–4. sæti urðu Örvar Hólm Brynjarsson og Kormákur Ólafur Kjartansson. Þeir hlutu báðir 4 vinninga. Örvar hlaut bronsverðlaun eftir stigaútreikning.

Sérstök stúlknaverðlaun komu í hlut Iðunnar Helgadóttur sem hlaut 5 vinninga.
Eftirtaldir tryggðu sér keppnisrétt fyrir Íslands hönd á HM ungmenna í netskák sem fram fer í ágúst nk. með því að vera efst í sínum aldursflokki.
- U16: Benedikt Briem
- U14: Ingvar Wu Skarphéðinsson og Iðunn Helgadóttir
- U12: Matthías Björgvin Kjartansson og Guðrún Fanney Briem
Mótið fór fram í Rúgbrauðsgerðinni eins og Meistaramót Skákskóla Íslands 2020 í stigahærri flokknum sem sameinaðist þar Unglingameistaramóti Íslands. það mótið verður haldið aftur seinni part árs.
Aðalskákdómari var Páll Sigurðsson en skákstjórar/skákdómarar voru Helgi Ólafsson og Lenka Ptacnikova.
Í mótslok afhentu þeir Helgi Ólafsson og Agnar Tómas Möller aðalstyrktaraðili Meistaramóts Skákskóla Íslands 2021 verðlaun.






