Hraðskákmót stúlkna verður haldið í hinum glæsilegu húsakynnum Siglingaklúbbsins Ýmis, að Naustavör 14 í Kópavogi, þann 18. mars nk. og hefst kl. 15. Það er Skákskóli Íslands sem stendur fyrir mótinu í samvinnu við skákdeildir Breiðabliks og Fjölnis. Tefldar verða 9 umferðir eftir svissneska kerfinu eftir tímamörkunum 5 3 og eru glæsileg verðlaun í boði þ.á m. ferðavinningar og áskriftir að Chess.com. Mótið er opið stúlkum á grunn- og framhaldsskólaaldri sem sótt námskeið á vegum Skákskólans en þátttakan takmarkast við 24 keppendur.
Verðlaun:
- verðlaun: Ferðavinningur að verðmæti kr. 40 þús.
- verðlaun: Ferðavinningur að verðmæti kr. 30 þús.
- verðlaun: Demantsáskrift að Chess.com í eitt ár.
- verðlaun: Demantsáskrift að Chess.com í eitt ár.
- verðlaun: Demantsáskrift að Chess.com í eitt ár.
Keppendur fæddar árið 2012 og síðar:
- verðlaun: Ferðavinningur að verðmæt kr. 30 þús.
- verðlaun: Demantsáskrift að Chess.com í eitt ár.
- verðlaun: Demantsáskrift að Chess.com í eitt ár.







