Freyja Birkisdóttir sigraði á hraðskákmóti stúlkna sem fór í glæsilegum samkomusal Siglingaklúbbsins Ýmis í Kópavogi á föstudaginn, 18. mars 2022. Freyja vann allar skákir sínar níu talsins en hún átti í harðri keppni við Iðunni Helgadóttur sem varð í 2. sæti 8 vinninga af 9 mögulegum. Mótið var opið stúlkum á grunn- og framhaldsskólaaldri og var þátttakan afar góð en keppendur voru 25 talsins. Þetta hraðskákmót er hið fyrsta í mótaröð sem Skákskóli Íslands stendur fyrir í samvinnu við skákdeild Fjölnis og Breiðabliks og SÍ, en mótin verða fimm talsins á þessu ári. Allir keppendur hjá Ými hafa sótt námskeið Skákskólans á haust og vetrarönn. Upphaflega var ráðgert að halda mótið milli jóla og nýárs en ný bylgja Covid 19 varð til þess að því var slegið á frest.
Keppt var um glæsileg verðlaun þar af voru þrír ferðavinningar er hugsaðir sem hvatning og góð viðspyrna eftir tveggja ára umsátursástandi vegna Covid faraldursins.

Það var Kópavogsbúinn og læknirinn Guðlaug Þorsteinsdóttir, margfaldur Íslandsmeistari kvenna og og fyrrverandi Norðurlandameistari kvenna, sem lék fyrsta leikinn fyrir Iðunni Helgadóttur sem tefldi við Þórhildi Helgadóttur.

Áður en það gerðist var afhjúpuð eftirprentun af teikningu eftir hinn þekkta bandaríska listamann,LeRoy Neiman sem hann gerði á meðan „Einvígi aldarinnar“ stóð sumarið 1972. Guðlaug tefldi þá í opnu móti og mætti argentíska stórmeistaranum og goðsögninni Miguel Najdof, en myndin þykir fanga sérstaklega vel það andrúmsloft sem ríkti í skákklúbbnum í Glæsibæ sem dró til sín marga nafntogaða skáksnillinga.
Guðlaug var 11 ára gömul þegar skákin var tefld og þegar nærstaddir virtu myndina fyrir sér hjá Siglingaklúbbnum við Naustavör bar mönnum saman um það að 50 ár væru skjótt liðin hjá. Guðlaug var tvímælaust eina af stóru aukapersónum í því sjónarspili sem einvígi Fischers og Spasskís var.

Gríðarlega hörð keppn i var um efsta ætið og gekk mikið á þegar Iðunn og Freyja tefldu í 5. umferð í einni af úrslitaskákum mótsins. Freyja fékk betra tafl eftir byrjunina, vann peð, en gáði ekki að sér og gat Freyja gert út um taflið með tvöfaldri biskupsfórn. Hún fórnaði raunar öðrum biskupinum en þá héldu varnir Iðunnar, sem virtist vera með unnið tafl, en keppnisharka Freyju er vel þekkt og henni tókst að snúa taflinu sér í vil með framsæknu h-peði.
Keppt var í tveim verðlaunaflokkum því stúlkur fæddar 2012 og síðar áttu einnig sinn verðlaunaflokk.
Úrslit mótsins urðu þessi:
https://chess-results.com/tnr620240.aspx?lan=1
Verðlaunahafar:
Þrjár efstu á hraðskákmóti stúlkna: Guðrún Fanney Briem, Freyja Birkisdóttir og Iðunn Helgadóttir- verðlaun: Freyja Birkisdóttir
- verðlaun: Iðunn Helgadóttir
- verðlaun: Guðrún Fanney Briem
- verðlaun: Katrín María Jónsdóttir
- verðlaun: Þórhildur Helgadóttir
Stúlkur fæddar 2012 og síðar:

- verðlaun: Sigrún Tara Sigurðardóttir
- verðlaun: Tara Líf Ingadóttir
- verðlaun: Emilía Embla Berglindardóttir
Staðan í stigakeppni mótaraðarinnar eftir fyrsta mótið af fimm er þessi:
- Freyja Birkisdóttir 20 stig
- Iðunn Helgadóttir 15 stig
- Guðrún Fanney Briem 12 stig
- Sigrún Tara Sigurðardóttir 10 stig
- Katrín María Jónsdóttir 8 stig
- Tara Líf Ingadóttir 6 stig
- Þórhildur Helgadóttir 4 stig
- Hrafndís Karen Óskarsdóttir 2 stig
Skákstjórar voru Gunnar Björnsson, Jóhann Björg Jóhannsdóttir og Helgi Ólafsson. Þá veittu Helgi Árnason, Páll Sigurðsson og Guðjón Magnússon margvíslega aðstoð.





