Annað mótið af fimm sem áætlað er að halda árið 2022 í mótaröð Skákskólans fer fram í Hörpu laugardaginn 9. apríl og hefst kl. 10 morguninn og lýkur um kl. 13. Tefldar verða 9 umferðir með tímamörkunum 5 3 Bronstein.
Með þessu móti bætist við einn viðburður í viðamikilli dagskrá Kviku Reykjavíkurmótsins. Þetta er annað mótið í mótaröðinni sem hófst hjá Siglingaklúbnum Ými föstudaginn 18. mars sl. Tilhögun mótsins verður með svipuðum hætti en smávægilegar breytingar hafa gerðar varðandi verðlaun. Mótið er opið öllum stúlkum á grunn- og framhaldsskólaaldri.
Verðlaun verða þessi:
- verðlaun: 30 þús ferðavinningur
- verðlaun: 20 Þús ferðavinningur
- verðlaun: 15 þús ferðavinningur
- verðlaun: Chessable byrjunarkennsla
- verðlaun: Chessable byrjunarkennsla.
Stúlkur fæddar 2012 og síðar:
- verðlaun: 20 þús. kr. ferðavinningur
- verðlaun: 15 þús. ferðavinningur
3 verðlaun: Chessable byrjunarkennsla.
Þá er keppt um 77 stig í mótaröðinni.
Staðan í mótaröðinni eftir fyrsta mótið er þessi:
- Freyja Birkisdóttir 20 stig
- Iðunn Helgadóttir 15 stig
- Guðrún Fanney Briem 12 stig
- Sigrún Tara Sigurðardóttir 10 stig
- Katrín María Jónsdóttir 8 stig
- Tara Líf Ingadóttir 6 stig
- Þórhildur Helgadóttir 4 stig
- Hrafndís Karen Óskarsdóttir 2 stig
Mótsstjórnin áskilur sér rétt til að gera breytingar á boðaðri dagskrá.






