Haustmót SA hófst í gær. Keppendur eru átta í þetta sinn og því tefldar sjö umferðir allir-við-alla. Þrjár skákir voru tefldar í gær.
- Benedikt Stefánsson-Áskell Örn Kárason 0-1
- Sigurður Eiríksson-Hilmir Vilhjálmsson 1-0
- Símon Þórhallsson-Elsa María Kristínardóttir 1-0
Skák þeirra Andra Freys Björgvinssonar og Smára Ólafssonar var frestað til þriðjudags. Önnur umferð verður tefld á fimmtudags og hefst kl. 18. Þá eigast þessi við:
- Benedikt og Sigurður
- Hilmir og Andri
- Smári og Símon
- Áskell og Elsa
Sjá nánar á Chess-results.
- Auglýsing -

















