Í dag var þriðja umferð Skákþings Akureyrar tefld, nema hvað skák Arnars og Andra var frestað til 22. janúar. Í öðrum skákum urðu úrslit sem hér segir.
Skák Sigurðar gegn Símoni lauk fyrst. Símon mætti vel undirbúinn til leiks og fékk óstöðvandi sókn. Hann fórnaði tímabundið skiptamun og vann liðið til baka með miklum vöxtum og vaxtavöxtum. Þegar herafli hvíts var orðinn helst til fáliðaður gafst Sigurður upp.
0-1
Benedikt stýrði hvítu mönnunum gegn Stefáni. Fréttaritara þótti sem í þrígang hafi hinn síðarnefndi misst af vænlegri leið en varð að lokum að gefa drottningu fyrir hrók og riddara. Benedikt stýrði þeirri stöðu sannfærandi í sigurhöfn
1-0
Í skák Rúnars og Smári pressaði hvítur stíft. Líkt og í fyrstu skák Rúnars, þar sem hann stýrði einnig hvítu mönnunum, fékk hann sterka riddara sem þrengdu svo mjög að svörtu stöðunni að eitthvað varð undan að láta. Sannfærandi sigur hjá Rúnari.
1-0
















