Stjórn Skáksambands Íslands boðar hér með til aðalfundar Skáksambandsins í samræmi við 8. gr. laga SÍ.
Fundurinn verður haldinn laugardaginn 1. júní 2019 kl. 09:00 fyrir hádegi á Hofi á Akureyri.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnir aðildarfélaganna eru vinsamlegast beðnar að senda félagatal til Skáksambands Íslands í pósth. 8354, 128 Reykjavík eða á netfang skaksamband@skaksamband.is fyrir 15. maí 2019.
Bréf þetta er sent ásamt gögnum í samræmi við 9. gr. laga S.Í., en sú grein hljóðar svo:
Við atkvæðagreiðslu á aðalfundi á hvert félag eitt atkvæði enda hafi það a.m.k. 10 félagsmenn með lögheimili á Íslandi í Keppendaskrá Skáksambandsins tveim vikum fyrir aðalfund. Eitt atkvæði bætist við hjá félagi fyrir hverja sveit sem það sendir í Íslandsmót skákfélaga það árið. Við atkvæðagreiðslu um kjörbréf í upphafi fundar skal gilda sú regla, að hvert félag fari ekki með fleiri atkvæði en það hafði á aðalfundi árið áður. Enginn fulltrúi getur farið með meira en eitt atkvæði á fundinum. Við atkvæðagreiðslur á aðalfundi ræður einfaldur meirihluti atkvæða, nema um þau mál sem sérstaklega eru tilgreind í þessum lögum.
Einnig skal bent á 6. grein:
Standi aðildarfélag í gjaldfallinni skuld við sambandið hefur það ekki rétt til að eiga fulltrúa á aðalfundi. Skákdeildir í félögum geta átt aðild að sambandinu, enda hafi þá minnst 10 menn bundist slíkum samtökum. Heimilt er tveimur eða fleiri aðildarfélögum í sama landshluta að stofna með sér svæðissamband.
Lagabreytingar fyrir aðalfund 2019

















