Í dag er ár liðið frá andláti Gylfa Þórhallssonar skákmeistara og forystumanns Skákfélags Akureyrar til áratuga.
Við skákfélagsmenn höfum lengi stefnt að því að halda veglegt skákmót í minningu hins fallna félaga, en erfitt eða illmögulegt hefur verið að koma því á vegna samkomutakmarkana, sem einkennt hafa daglegt líf í landinu á þessu tólf mánaða tímabili. Eitt er þó víst að mótið verður haldið og hefur það nú verið sett á dagskrá um komandi hvítasunnuhelgi, eða dagana 21-24. maí nk. Tefla á í menningarhúsinu Hofi. Gert er ráð fyrir að mótið hefjist á föstudagskvöld og ljúki á mánudegi. Líklega verða tefldar atskákir. Gert er ráð fyrir því að verðlaunafé verði í heild um 400 þúsund krónur.
Óvissan um það hvort hægt verður að halda mótið á þessum tíma er enn til staðar. Nánari staðfesting verður því að bíða, en þeir sem áhuga hafa á þátttöku eru hvattir til að gera viðeigandi ráðstafanir í tíma. Vonandi sjáumst við öll um hvítasunnuna í Hofi!
Áskell Örn Kárason
- Auglýsing -















