Afmælismóti Ólafs Kristjánssonar, sem fram fór um helgina, lauk með öruggum sigri alþjóðameistarans Vignis Vatnars Stefánssonar. Hann leyfði aðeins tvö jafntefli í 11 skákum. Þau gegn Briem-bræðrunum, Stephani og Benedikti sem enduðu í 2.-3. sæti.

Lokastaða efstu manna
- Vignir Vatnar Stefánsson 10 v.
- Benedikt Briem 7½ v.
- Stephan Briem 7½ v.
- Jón Kristinn Þorgeirsson 7 v.
- Rúnar Sigurpálsson 7 v.
- Áskell Örn Kárason 7 v.
Næstir með 6½ vinning voru þeir Ingvar Wu Skarphéðinsson, Gauti Páll Jónsson, Adam Omarsson og Bragi Halldórsson.

Veitt voru verðlaun fyrir fimm efstu sætin á mótinu. Auk þess kvennaverðlaun, sem Iðunn Helgadóttir hlaut; öldungaverðlaun sem féllu í skaut Áskeli og tvenn verðlaun í stigaflokkum. Benedikt Þórisson fékk verðlaun í u1600 stiga flokki og Benedikt Briem í u2000 stiga flokki.
Mótið fór fram í Hömrum í menningarhúsinu Hofi og heppnaðist afar vel. Fyrir utan öruggan sigur Vignis var hart barist um verðlaunasætin.
Skákstjórinn Þórir Benediktsson tók þessa myndina hér að ofan af verðlaunahöfum, auk afmælisbarnsins Ólafs og höfuðpaursins Smára, sonar Ólafs.
Öll úrslit og lokastöðuna má sjá á chess-results.


















