Vignir Vatnar var að fá mjög gott boð um að æfa með öllum efnilegustu skákmönnum Norðurlanda.
Þetta er æfingahópur á vegum Offerspil í Noregi og Uppsala skákakademíunnar.
Magnus Carlsen stendur á bakvið Offerspil og hinn sænski Carl Fredrik Johansson á bakvið Uppsala skákakademíuna.
Þjálfarar æfingahópsins eru m.a. GM Boris Gelfand og GM Ramachandran Ramesh (þjálfari ungmennaliðs Indlands sem stóðu sig svo vel á ÓL um daginn). Í þessum æfingahópi, sem telur í dag fjórtán efnilega norræna skákmenn, eru fjölmargir stórmeistarar og alþjóllegir meistarar eins og Aryan Tari, Johan-Sebastian Christiansen, Jesper Thypo, Frode Urkedal ….
Yfirþjálfari verkefnisins er hinn sænski Jesper Bergmark Hall.
Vikulega verða 1.5klst fjarþjálfun og heimaverkefni frá Ramesh. Svo verða fjórar fjögurra daga þjálfunarbúðir í Ósló á ári. Verkefnið mun svo skipuleggja sameiginlegar ferðir hópsins á skákmót. Vignir Vatnar mun væntanlega einnig tefla fyrir Offerspil í norsku deildakeppninni (þrjár helgar á ári). Hann verður samt áfram félagi í Skákdeild Breiðabliks og mun æfa og keppa með félögum sínum þar.
Þetta er mikil viðurkenning fyrir Vigni Vatnar og tekur hann á næsta stig á skákferli sínum. Spennandi tímar framundan fyrir hann og íslenskt skáklíf!

















