Fjórðu umferð Evrópumóts ungmenna lauk fyrr í kvöld í Antalya í Tyrklandi. Sextán íslenskir keppendur sitja að tafli í mótinu. Sigurður Páll, Benedikt Briem, Guðrún Fanney og Iðunn unnu öll í dag. Birkir og Aleksandr gerðu jafntefli en aðrir töpuðu sínum skákum.

Iðunn Helgadóttir vann góða skák gegn hinni ítölsku Sharon Glover. Þegar Glover stóð betur í miðtaflinu fór hún í röng uppskipti og Iðunn fékk biskupaparið gegn hrók og peði. Iðunn vann svo endataflið eftir töluverðar sveiflur.

Sigurður Páll Guðnýjarson fékk upp rólega stöðu með hvítu úr mótteknu drottningarbragði. Í jöfnu endatafli tók hann áhættu og fórnaði skiptamun fyrir vinningsmöguleika. Áhættan borgaði sig því tyrkneskur andstæðingur hans gerði mistök og hleypti frípeði Sigurðar Páls á b-línunni of langt. Sigurður Páll hafnaði jafntefli og hélt áfram með frípeðið – sem á endanum varð ekki stöðvað og Sigurður Páll innbyrti sigurinn.

Benedikt Briem tefldi mikla baráttuskák gegn Georgíumanninum Gotsiridze. Baráttan var ekki bara háð á borðinu heldur má segja að ákveðið andlegt stríð hafi geysað á milli Benedikts og Georgíumannsins. Stríðið fólst einkum í störukeppni og baráttu um yfirráð yfir fótaplássinu undir borðinu. Benedikt fékk betra tafl eftir byrjunina en hleypti Gotsiridze inn í skákina. Benedikt hafði hins vegar mjög sterkan riddara á miðborðinu og veik kónsstaða hvíts gerði honum erfitt fyrir. Í tímahrakinu missti Georgíumaðurinn tökin á stöðunni og Benedikt vann góðan sigur, bæði á borðinu og undir borðinu.

Guðrún Fanney Briem tefldi lengstu skák umferðarinnar. Guðrún Fanney er ekki óvön því enda mikill baráttujaxl. Upp kom London-system og eftir mikla baráttu nokkuð jafnt miðtafl. Alexandra Ceruta bauð jafntefli en Guðrún Fanney var staðráðin í því að vinna skákina og hafnaði því. Með mikilli seiglu, og talsverðri þrjósku, tókst henni að lokum að innbyrða mikinn baráttusigur.

Pörun 5. umferðar sem hefst 12:00 á morgun. Mikael Bjarki og Benedikt Þórisson fá báðir yfirsetu. Aleksandr verður í beinni útsendingu á morgun.

Heimasíða mótsins
Beinar útsendingar
Chess-results















