Jólaandinn sveif yfir vötnum á jólaskákkvöldi TG í Miðgarði á mánudagskvöld. Boðið var upp á heitt súkkulaði, döðlugott, piparkökur og 9 umferðir af hraðskák.
Lenka Ptacnikova vann 8 af 9 skákum sínum. Hún tapaði aðeins fyrir Gauta Páli Jónssyni en fékk hjálp frá TG félögum sínum Jóhann Ragnarssyni og Páli Sigurðssyni sem tryggðu að Gauti myndi bara ná 7 vinningum og ekki taka GM titilinn með sér til Reykjavíkur. Jóhann tapaði bara fyrir Lenku og var því jafn henni að vinningum en lægri á stigum. Lenka er því GM (GarðabæjarMeistari) þangað til skákkvöldin koma úr jólafríi 6. janúar n.k.
Undirritaður átti tvískipt mót, tapaði fyrstu þrem gegn þeim sem á endanum urðu í efstu þrem sætunum en svo komu 6 skákir án taps. Vendipunkturinn kom líklega í skák gegn Helga Haukssyni. Helgi tefldi af öryggi og var kominn með gjörunnið en flýtti sér hins vegar aðeins of mikið að vekja upp drottningu í stöðunni hér fyrir neðan.



















