Hið árlega jólapakkamót Taflfélags Garðabæjar var haldið í Miðgarði laugardaginn 14. desember. Mótið á sér áratuga langa sögu og hafa mörg þúsund börn tekið þátt í gegnum árin.

Í ár mættu vel á annað hundrað börn til leiks en teflt var í 7 flokkum. Efstu þrjár stúlkur og þrír strákar í hverjum flokki fengu jólapakka auk þess sem fjöldi pakka var dreginn út í happdrætti í mótslok. Öll börnin fengu svo jólaglaðning áður en þau fóru heim.

Mótið var vel stutt af Skáksambandi Íslands, Eddu útgáfu, Gamia Games, Skákbúðinni og Bókaútgáfunni Uglu auk þess sem starfsfólk í Miðgarði er einstaklega liðlegt að hjálpa til við viðburði í húsinu. Þá þakkar Taflfélag Garðabæjar öllum þeim sjálfboðaliðum sem komu að skipulagningu mótsins!

Úrslit einstakra flokka má sjá hér að neðan:

A flokkur (2009 – 2011)
Piltar
1. Tristan Nash Alguno Openia – Hvaleyrarskóli – 4,5 af 5
2. Nökkvi Hólm Brynjarsson – Lindaskóli – 4 af 5
3. Sveinbjörn Sophus Björnsson – Víðistaðaskóli – 3,5 af 5

B flokkur (2012 – 2013)
Piltar
1. Hafþór Andri Þorvarðarson – Helgafellsskóli – 5 af 5
2. Viktor Hrafn Ólafsson – Víðistaðaskóli – 4 af 5
3-4. Þröstur Elímar Eldar Svansson – Hvaleyrarskóli – 3 af 5 (9 stig)
3-4. Brynjar Þór Sævarsson – Hofsstaðaskóli – 3 af 5 (9 stig)

Stúlkur
1. Emilía Sigurðardóttir – Rimaskóli – 4 af 5.
2. Unnur Karen Ólafsdóttir – Rimaskóli – 2 af 5
3. Hulda Rún Helgadóttir – Víðistaðaskóli – 1 af 5

C flokkur (2014 – 2015)
Piltar
1. Pétur Úlfar Ernisson – Langholtsskóli  5 af 5
2. Gunnar Thor Þórhallsson – Langholtsskóli 4 af 5

3. Hjörtur Einarsson Kvaran – Hlíðaskóli – 4 af 5

Stúlkur
1. Katrín Ósk Tómasdóttir – Hvaleyrarskóli 4,5 af 5.
2. Ronja Áskatla Petersen – Smáraskóli – 3 af 5.
3. Kartrín Svala Ólafsdóttir – Víðistaðaskóli – 2 af 5. (13 stig)

D flokkur (2016)
Piltar
1. Dagur Sverrisson – Vesturbæjarskóli – 4,5 v
2. Jakob Þór Emilsson – Hofstaðaskóli – 4 v.
3. Alexander Leó Óskarsson – Rimaskóli – 4 v.

Stúlkur
1. Miroslava Skibina – Landakotsskóli – 3,5 v
2. Kateryna Melnykova – Álfhólsskói – 2 v. (8 stig)
3. Kristín Jóna Hjartardóttir – Vatnsendaskóli – 2 v. (7 stig)

E flokkur (2017)
Piltar
1. Mikael Már Atlason – Rimaskóli – 5 v.
2. Sævar Svan Valdimarsson – Rimaskóli – 4 v.
3. William Stefánsson – Álfhólsskói – 3 v. (11 stig)

Stúlkur
1. Gunnhildur Aþena Helgadóttir – Rimaskóli – 4 v.
2. Emilía Klara Tómasdóttir – Hvaleyrarskóli – 3,5 v.
3. Elsa María Bachadóttir – Rimaskóli – 2 v.

F flokkur (2018)
Piltar
1. Hólmsteinn Pétursson – Kársnesskóli – 5 v.
2. Alexander Dagur S. Sigþórsson – Vatnsendaskóli – 4 v. (18,5 stig)
3. Helgi Fannar Óðinsson – Norðlingaskóli – 4 v. (13 stig)

Stúlkur
1. Eyja Hugadóttir – Laufásborg – 4 v.
2. Sólveig Hólm Brynjardóttir – Lindaskóli – 3 v. (10 stig)
3. Ingibjörn Lóa Auðar Héðinsdóttir – Vesturbæjarskóli – 3 v. (9 stig)

Peðaskák.
1. Arnar Sverrisson Frýdal – Álfhólsskói – 4 v. (13 stig)
2. Sverrir Ingi Haraldsson – Leikskólinn Akrar – 4 v. (12 stig)
3. Þorvaldur Kort Lárusson – Leikskólinn  Hnoðraholt 3,5 v.

 

 

- Auglýsing -