Við héldum nýstárlegt stelpuskákmót nú á skákdaginn; keppni milli Lundarskóla og Brekkuskóla, stelpur í 4-7. bekk.
13 stúlkur mættu til leiks og teflt á sex borðum, sex umferðir (sk. bændaglíma). Lauk með naumum sigri Brekkuskóla, 19,5-16,5.
Bestur einstaklingsárangri náði Harpa Hrafney Karlsdóttir út Lundarskóla, vann allar sínar skákir, sex talsins. Brekkuskólamegin voru Þær Inga Karen Björgvinsdóttir og Ragnheiður Valgarðsdóttir bestar, fengu 5 vinninga hvor.
Skemmtilegt og fjörugt mót – margar efnilegar stelpur hér á ferðinni. Við stefnum á Akureyrarmóti í stúlknaflokki í næsta mánuði.
- Auglýsing -

















