Í tilefni af Landsmóti í skólaskák, sem fram fer á Ísafirði 3.-4. maí, heimsótti skólastjóri Skákskóla Íslands grunnskóla á svæðinu. Tilgangur ferðarinnar var að hitta skólastjórnendur og ræða við þá um skák í skólum.
Mikill skákáhugi er að kvikna fyrir vestan og hefur nýstofnaður félagsskapur, Skákfélag Vestfjarða, lagt sitt á vogarskálarnar í þeim efnum. Einnig búa grunnskólarnir vel að því að hafa innan sinna raða áhugasama starfsmenn sem hafa sýnt skákinni athygli. Í Grunnskóla Önundarfjarðar á Flateyri fá allir nemendur skólans skákkennslu einu sinni í viku!

Það voru Landsmótsstjórinn og skákkennarinn Gauti Páll Jónsson og Halldór Pálmi Bjarkason, einn af forystumönnum Skákfélags Vestfjarða, sem tóku þátt í heimsóknunum með skólastjóranum.

Þessir erindrekar skákarinnar færðu grunnskólunum nokkur skáksett að gjöf frá Skáksambandi Íslands. Vonin er að þau komi að góðum notum í skólastarfinu í framtíðinni.
Í framhaldi af heimsókninni er stefnt að því að Skákskóli Íslands muni styðja við og þjónusta grunnskólana á Vestfjörðum í þeirra skákstarfi.
















