Vormót Skákskóla Íslands fer fram dagana 24.-25. maí. Mótið markar lok vorannar skólans.

Mótið er opið öllum nemendum fæddum 2005 og síðar sem tekið hafa þátt í námskeiðum og starfsemi Skákskólans starfsárið 2024-2025.

Tefldar verða 9 umferðir.
Tímamörk verða 15+5 og skákirnar reiknaðar til atskákstiga.

Dagskrá:

Laugardagur 24. maí
Umferðir 1-5
kl. 11:00-16:00

Sunnudagur 25. maí
Umferðir 6-9
kl. 11:00-15:00

Verðlaun:
1. sæti – Ferðastyrkur að verðmæti 50.000 kr.
2. sæti – Ferðastyrkur að verðmæti 30.000 kr.
3. sæti – Ferðastyrkur að verðmæti 20.000 kr.

Aukaverðlaun í flokki keppenda undir 1800 skákstigum:
1. verðlaun – Ferðastyrkur að verðmæti 20.000 kr.
2. verðlaun – Kennsluefni af Chessable að verðmæti 15.000 kr.
3. verðlaun – Kennsluefni af Chessable að verðmæti 10.000 kr.

Besti árangur stúlkna: Ferðastyrkur að verðmæti 20.000 kr.

Ekki er hægt að vinna til fleiri en einna verðlauna.

Skráning stendur til kl. 12:00 föstudaginn 23. maí.

Skráningarform
Þegar skráðir keppendur

Beinar útsendingar
Chess-results

- Auglýsing -