Verðlaunahafar á síðasta barnaskákmóti KR
Barnaskákmót KR verður haldið laugardaginn 24. maí 2025 og hefst það klukkan 13:00 í Samfélagshúsinu á Aflagranda 40.
Tímamörkin verða 8 mínútur á hvorn keppenda að viðbættum 3 sekúndum fyrir hvern leik (8 +3). Tefldar verða 7  umferðir.
Keppt verður í tveimur flokkum. Annars vegar 1.-3. bekkur og hins vegar 4.-8. bekkur. Mótin verða reiknuð til alþjóðlegra atskákstiga.

Efstu krakkarnir í hvorum flokki fá verðlaun.

Pizzur verða í boði fyrir skráða þátttakendur og aðstandendur frá 12:20.

- Auglýsing -