Hluti hópsins á leið á skákstað

Íslensku keppendurnir á EM ungmenna fengu sjö vinninga af fjórtán mögulegum í 5. umferð mótsins.

Landsliðskonurnar Guðrún Fanney og Iðunn unnu báðar ásamt Nökkva Má, Birki, Jósef og Adam. Mikael Bjarki gerði jafntefli í sinni skák og Gunnar Erik og Ingvar Wu einnig, í innbyrðis viðureign. Aðrir töpuðu í dag.

,,Ég vann!“ – Jósef, Birkir og Theódór

Nökkvi Már tefldi flotta skák í dag gegn Janko Markovic frá Svartfjallalandi. Undirbúningur gekk vel upp og eftir að Nökkvi vann skiptamun varð tæknilega úrvinnslan mjög fagmannlega hjá okkar manni. Góður sigur.

Nökkvi Már Valsson
Sigurvegarar í sólinni

Guðrún Fanney kláraði sína skák smekklega:

36. Bxf5! exf5 37. Dxf5+ og mát í kjölfarið

Gunnar Erik og Ingvar Wu gerðu jafntefli í dag

Guðrún Fanney Briem hefur flesta vinninga íslensku keppendanna, 3,5, að loknum fimm umferðum. Jósef Omarsson hefur 3 vinninga.

Á morgun, mánudag, er frídagur í mótinu.

6. umferð hefst kl. 13:00 að íslenskum tíma á þriðjudaginn. Guðrún Fanney verður eini íslenski keppandinn í beinni útsendingu.

Pörun 6. umferðar

Chess-results
Beinar útsendingar
Heimasíða mótsins

Mótið stendur yfir frá 29. okt til 7. nóv.

Ísland á 15 fulltrúa á mótinu. Þeir eru:
U8 Róbert Heiðar Skúlason
U10 Pétur Úlfar Ernisson
U10 Nökkvi Már Valsson
U12 Haukur Víðis Leósson
U12 Birkir Hallmundarson
U14 Jósef Omarsson
U16 Markús Orri Óskarsson
U16 Markús Orri Jóhannsson
U16 Mikael Bjarki Heiðarsson
U16 Theódór Helgi Eiríksson
U16-stúlknaflokkur Guðrún Fanney Briem
U18 Ingvar Wu Skarphéðinsson
U18 Adam Omarsson
U18 Gunnar Erik Guðmundsson
U18-stúlknaflokkur Iðunn Helgadóttir

Þjálfarar hópsins eru Björn Ívar Karlsson og Ingvar Þór Jóhannesson

- Auglýsing -