Lokaumferð Minningarmóts Friðriks Ólafssonar fór í Faxafeni 12 í húsakynnum Taflfélags Reykjavíkur, nánar tiltekið í Friðrikssal! Fyrir umferðina var moldóvski stórmeistarinn Ivan Schitco í efsta sæti ásamt Norðmanninum Tor Fredrik Kaasen en þeir höfðu 6 vinninga af 8 mögulegum. Ljóst var að baráttan um sigurinn væri á milli þeirra.
Staða efstu manna fyrir umferðina:

Tor Frederik fékk á pappírnum erfiðara verkefni fyrir umferðina en hann þurfti að vinna með svörtu mönnunum gegn Bárði, mjög traustum FIDE meistara.
Norðmaðurinn gerði að mörgu leiti vel, náði að vinna peð en umframpeðið var í þvögu með öllum hinum á kóngsvæng og vinningsmöguleikarnir mjög takmarkaðir! Bárður gerði allt rétt í vörninni.
Þessi úrslit reyndust að mörgu leiti stoðsending fyrir Ivan en eins og úrslit enduðu í lokaumferðinni þá hefði Tor unnið á oddastigum ef Ivan hefði gert jafntefli. Ivan fékk snemma yfirburðatafl í miðtaflinu en hinsvegar varð honum á í úrvinnslunni á nokkrum stöðum þrátt fyrir að vera skiptamun yfir. Kom það ekki að sök og hafði Ivan sigur á endanum og hefið líklegast gert í flestum sviðsmyndum þrátt fyrir að missa tökin tímabundið á köflum.
Fín úrslit hjá Ivan sem er taplaus í 15 kappskákum á Íslandi nú í nóvember og getur vel við unað. Kærasta hans, Gerghana Pechava, tryggði sér WGM norm í gær og gekk skrefinu lengra í dag og náði sér í IM-norm með öruggu jafntefli með hvítu gegn Risteski.
Vignir Vatnar hefði viljað gera betur á mótinu en tryggði sér verðlaunasæti með því að leggja Íslandsmeistarann Hilmi Frey að velli í lokaumferðinni.
Úrslit lokaumferðarinnar:

Lokastaðan:

Verðlaunahafar:

















