Sjálft heimsmeistaraeinvígið í skák hefst í dag, þriðjudaginn 24. nóvember, þegar heimsmeistarinn Dommaraju Gukesh frá Indlandi og áskorandinn Javokhir Sindarov frá Úsbekistan setjast að tafli í Genf í Sviss. Fyrsta skákin hefst klukkan 14:00 að íslenskum tíma og hefur Sindarov hvítt.
Mikil eftirvænting ríkir fyrir einvíginu, enda mætast þar tveir af efnilegustu skákmönnum heims. Báðir eru aðeins tvítugir og hefur aldrei áður verið teflt heimsmeistaraeinvígi þar sem báðir keppendur eru jafn ungir.
Gukesh varð heimsmeistari árið 2024, aðeins 18 ára gamall, þegar hann lagði Ding Liren að velli í dramatísku einvígi í Singapúr. Sindarov hefur hins vegar verið á gríðarlegri siglingu undanfarin misseri og vann bæði heimsbikarmótið árið 2025 og Áskorendamótið 2026.
Þrátt fyrir að Gukesh sé ríkjandi heimsmeistari benda nýleg úrslit og skákstig til þess að Sindarov sé líklegri til sigurs. Úsbekinn er með 2782 Elo-stig og í fjórða sæti heimslistans, en Gukesh hefur 2710 stig og situr í 26. sæti.
Mikið er því undir þegar fyrsta skákin hefst í dag.
Teflt í sögulegu umhverfi í Genf
Einvígið fer fram í Fondation Martin Bodmer í Cologny, skammt frá Genf. Þar er að finna eitt merkasta safn heims á sviði bókmennta, handrita og sögulegra heimilda.
Safnið varðveitir um 150.000 skjöl á nærri 120 tungumálum og er safnkosturinn skráður á lista UNESCO yfir mikilvægan skjalfestan menningararf heimsins.
Þetta er í fyrsta sinn síðan árið 2004 sem heimsmeistaraeinvígi er haldið í Sviss, en þá mættust Vladimir Kramnik og Peter Leko í Brissago.
Opnunarhátíð einvígisins fór fram sunnudaginn 22. nóvember í Palais des Nations, höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna í Genf. Þar var einnig dregið um liti í fyrstu skákinni. Sindarov hreppti hvítu mennina en Gukesh fékk svart.
Fyrstur í 7½ vinning verður heimsmeistari
Einvígið er að hámarki 14 kappskákir og stendur frá 24. nóvember til 11. desember, nema annar keppandinn tryggi sér sigur fyrr.
Sá sem fyrstur nær 7½ vinningi verður heimsmeistari. Verði staðan 7–7 að loknum 14 skákum verður gripið til styttri skáka til að knýja fram úrslit.
Tímamörkin í kappskákunum eru eftirfarandi:
- 120 mínútur á fyrstu 40 leikina.
- Að loknum 40. leik fá keppendur 30 mínútur til viðbótar til að ljúka skákinni.
- Frá og með 41. leik bætast 30 sekúndur við klukkuna fyrir hvern leik.
Keppendum er ekki heimilt að bjóða jafntefli fyrr en eftir 40. leik svarts. Áður geta skákir þó endað með jafntefli samkvæmt viðeigandi reglum, svo sem við þrátefli eða við patt.
Hvað gerist ef staðan verður 7–7?
Ef keppendur skilja jafnir eftir 14 kappskákir verður teflt til úrslita laugardaginn 12. desember.
Fyrst verða tefldar fjórar atskákir með tímamörkunum 15 mínútur + 10 sekúndur á leik.
Ef enn er jafnt verða tefldar tvær skákir með tímamörkunum 10+5 og síðan, ef þörf krefur, tvær hraðskákir með tímamörkunum 3+2.
Verði staðan enn jöfn verða tefldar stakar hraðskákir, einnig með tímamörkunum 3+2, þar til önnur skákin endar með sigri.
Dagskrá heimsmeistaraeinvígisins
Allar kappskákir hefjast klukkan 14:00 að íslenskum tíma, eða 15:00 að staðartíma í Genf.
Nóvember
- 24. nóvember: 1. skák
- 25. nóvember: 2. skák
- 26. nóvember: 3. skák
- 27. nóvember: Hvíldardagur
- 28. nóvember: 4. skák
- 29. nóvember: 5. skák
- 30. nóvember: 6. skák
Desember
- 1. desember: Hvíldardagur
- 2. desember: 7. skák
- 3. desember: 8. skák
- 4. desember: 9. skák
- 5. desember: Hvíldardagur
- 6. desember: 10. skák
- 7. desember: 11. skák
- 8. desember: 12. skák
- 9. desember: Hvíldardagur
- 10. desember: 13. skák
- 11. desember: 14. skák
- 12. desember: Úrslitaskákir, ef með þarf
Einvíginu getur vitaskuld lokið fyrr ef annar keppandinn nær 7½ vinningi áður en allar 14 skákirnar hafa verið tefldar.
Verðlaunafé upp á 2,5 milljónir dollara
Heildarverðlaunaféð nemur 2,5 milljónum Bandaríkjadala og er skipting þess nokkuð óvenjuleg.
Fyrir hverja unna kappskák fær viðkomandi keppandi 200.000 dollara. Það verðlaunafé sem eftir stendur er síðan skipt jafnt á milli keppendanna.
Sem dæmi má nefna að ef annar keppandinn vinnur tvær skákir en hinn eina, og einvíginu lýkur 7½–6½, fær sigurvegarinn 1,35 milljónir dollara en sá sem tapar 1,15 milljónir.
Ef einvígið ræðst hins vegar í úrslitaskákum fær nýr heimsmeistari 1,3 milljónir dollara og sá sem tapar 1,2 milljónir.
Sama fasta skipting gildir við tvær sérstakar niðurstöður þar sem nánast allar eða allar kappskákirnar vinnast.
Aðalstyrktaraðili einvígisins er bandaríska tæknifyrirtækið Salesforce.
Gukesh – yngsti heimsmeistari sögunnar ver krúnuna
Dommaraju Gukesh, 20 ára, Indland – 2710 Elo
Gukesh skrifaði nafn sitt í sögubækurnar í desember 2024 þegar hann varð yngsti óumdeildi heimsmeistari skáksögunnar, aðeins 18 ára gamall.
Hann lagði þá kínverska heimsmeistarann Ding Liren að velli, 7½–6½, í einvígi sem réðst ekki fyrr en í fjórtándu og síðustu skákinni.
Sú skák virtist lengi stefna í jafntefli, en afdrifarík mistök Dings í hróksendatafli gerðu Gukesh kleift að knýja fram sigur og tryggja sér heimsmeistaratitilinn.
Gukesh varð þar með átjándi heimsmeistarinn í sögu skáklistarinnar og annar Indverjinn til að vinna titilinn, á eftir hinum goðsagnakennda Viswanathan Anand.
Áður hafði Gukesh unnið Áskorendamótið 2024 og verið í lykilhlutverki í ótrúlegum árangri indverska landsliðsins á Ólympíuskákmótinu í Búdapest sama ár, þar sem hann hlaut bæði gullverðlaun með liðinu og einstaklingsgull fyrir frammistöðu sína.
Erfiðara ár hjá heimsmeistaranum
Síðan Gukesh varð heimsmeistari hefur honum hins vegar ekki gengið allt í haginn.
Árið 2026 hefur verið fremur erfitt hjá honum í kappskák. Úrslitin hafa verið sveiflukennd, hann hefur tapað nokkrum skákum og skákstigin hafa lækkað umtalsvert frá hæstu stöðu hans, 2794 stigum.
Gukesh hefur nú 2710 stig og er í 26. sæti heimslistans, sem er óvenjuleg staða fyrir ríkjandi heimsmeistara.
Undirbúningur hans fyrir einvígið hefur því ekki einungis snúist um að rannsaka Sindarov, heldur einnig að endurheimta það sjálfstraust og þann stöðugleika sem einkenndi taflmennsku hans árið 2024.
Það eru þó einnig jákvæð teikn á lofti.
Á Ólympíuskákmótinu í Samarkand í september tefldi Gukesh á fjórða borði indverska landsliðsins og hlaut 8½ vinning í 11 skákum. Hann vann til silfurverðlauna á sínu borði og Indland hlaut jafnframt silfur í liðakeppninni.
Gukesh hefur því sýnt að hann getur enn teflt á allra hæsta stigi og reynslan frá heimsmeistaraeinvíginu gegn Ding Liren gæti reynst honum afar dýrmæt.
Sindarov – rísandi stórstjarna heimsins
Javokhir Sindarov, 20 ára, Úsbekistan – 2782 Elo
Það er varla ofsögum sagt að Javokhir Sindarov hafi verið ein helsta stjarna skákarinnar undanfarin misseri.
Sindarov fæddist í Taskent 8. desember 2005 og varð stórmeistari aðeins 12 ára og 10 mánaða gamall. Hann var því meðal yngstu stórmeistara sögunnar.
Hann vakti snemma athygli fyrir áræðna og útsjónarsama taflmennsku, en undanfarin ár hefur hann þróast í einn allra sterkasta kappskákmann heims.
Á Ólympíuskákmótinu í Chennai árið 2022 var Sindarov í sigurliði Úsbekistan þegar þjóðin vann söguleg gullverðlaun. Á heimavelli í Samarkand í september síðastliðnum endurtók Úsbekistan leikinn og varð Ólympíumeistari öðru sinni.
Sigur á heimsbikarmótinu 2025
Stórt skref í átt að heimsmeistaraeinvíginu kom í nóvember 2025 þegar Sindarov sigraði á heimsbikarmóti FIDE í Goa á Indlandi.
Hann lagði þar meðal annars kínverska stórmeistarann Wei Yi í úrslitum og varð yngsti sigurvegari heimsbikarmótsins frá upphafi.
Sigurinn tryggði honum sæti á Áskorendamótinu 2026, þar sem hann átti síðan eftir að gera enn betur.
Yfirburðasigur á Áskorendamótinu
Áskorendamótið fór fram á Kýpur í mars og apríl síðastliðnum.
Sindarov tefldi þar af fádæma öryggi, tapaði ekki einni einustu skák og tryggði sér sigur á mótinu þegar ein umferð var enn eftir.
Hann lauk keppni með 10 vinninga í 14 skákum, sem er einstaklega glæsilegur árangur í svo sterku móti, og varð 1½ vinningi fyrir ofan næsta mann, Anish Giri.
Með sigrinum varð hann fyrsti skákmaðurinn frá Úsbekistan til að tryggja sér rétt til að tefla heimsmeistaraeinvígi um hinn óumdeilda heimsmeistaratitil.
Formið bendir til Sindarov
Árangur Sindarovs árið 2026 hefur verið með hreinum ólíkindum.
Í fyrstu fjórum stóru kappskákmótum sínum á árinu vann hann 14 skákir, gerði 29 jafntefli og tapaði aðeins tveimur. Frammistaðan hans á þessum mótum voru að meðaltali 2837 skákstig (e. rating performance).
Hann er nú með 2782 Elo-stig, í fjórða sæti heimslistans og hefur aldrei setið í hærra sæti.
Þá hefur hann einnig sýnt styrk sinn í styttri skákum og sigraði meðal annars á Clutch Chess: Champions Showdown í Bandaríkjunum í haust.
Það er því ekki að ástæðulausu að margir telja Sindarov sigurstranglegri fyrir einvígið.
Fyrri viðureignir – Sindarov hefur yfirhöndina
Keppendurnir hafa mæst þrisvar í kappskák áður og hefur Sindarov mun betri árangur úr þeim viðureignum.
Sindarov hefur unnið tvær skákir og einni hefur lokið með jafntefli. Staðan er því 2½–½ Sindarov í vil.
Sigra hans má rekja aftur til áranna 2018 og 2022, þegar báðir voru enn afar ungir.
Síðasta kappskák þeirra fór fram á Tata Steel-mótinu í Wijk aan Zee í janúar á þessu ári og lauk henni með jafntefli.
Þessi fyrri úrslit eru vissulega Sindarov í hag, en heimsmeistaraeinvígi er allt annars eðlis en venjulegt skákmót.
Í einvígi sem getur staðið yfir í nærri þrjár vikur reyna ekki aðeins á skáklega getu og undirbúning keppendanna, heldur einnig úthald, sálfræðilega styrkleika og hæfnina til að bregðast við mótlæti.
Gukesh hefur þegar sýnt að hann ræður við slíkar aðstæður. Sindarov er hins vegar að tefla sitt fyrsta heimsmeistaraeinvígi.
Hver verður næsti heimsmeistari?
Það er býsna óvenjulegt að ríkjandi heimsmeistari fari inn í einvígi með svo mikinn mun á skákstigum sér í óhag.
Sindarov hefur 72 Elo-stigum meira en Gukesh og munurinn á sæti þeirra á heimslistanum er sá mesti í heimsmeistaraeinvígi síðan heimsmeistaratitillinn var sameinaður á ný árið 2006.
Þó ber að hafa í huga að fyrir heimsmeistaraeinvígið árið 2024 var Gukesh sjálfur mun stigahærri en Ding Liren, en þurfti engu að síður að hafa verulega fyrir því að knýja fram sigur.
Sindarov kemur til leiks með meðbyr og sjálfstraust eftir frábæran árangur undanfarin misseri, en Gukesh hefur reynsluna, seigluna og heimsmeistaratitilinn að verja.
Allt er því til staðar fyrir afar spennandi einvígi tveggja ungra stórmeistara sem gætu átt eftir að setja svip sinn á skákheiminn um langa framtíð.
Fylgist með einvíginu
Fyrsta skákin hefst í dag, þriðjudaginn 24. nóvember, klukkan 14:00 að íslenskum tíma.
Hægt verður að fylgjast með skákunum á opinberri heimasíðu heimsmeistaraeinvígisins og beinni útsendingu á YouTube-rás FIDE.
Stórmeistararnir Peter Leko og Peter Svidler verða meðal þeirra sem annast skýringar í opinberri útsendingu FIDE.
Skákáhugafólk ætti því að geta gert sér dagamun næstu vikurnar. Ný kynslóð stórmeistara berst um stærsta titil skáklistarinnar!
Skákirnar beint:
















