Það voru 103 krakkar sem mættu til leiks í Taflfélag Reykjavíkur í dag til að heyja baráttu á reitunum 64.

Um morguninn fóru fram yngri flokkarnir, en boðið var upp á þrjá yngri flokka.
Í yngri flokki 1 (f.2017-2018) varð Jón Fenrir Ragnarsson efstur með fullt hús, 5 vinninga. Í öðru sæti varð Helgi Fannar Óðinsson með 4 vinninga og í 3. sæti varð Emilía Klara Tómasdóttir, einnig með 4 vinninga, en lægri á mótsstigum. Fleiri fengu 4 vinninga en voru enn lægri á mótsstigum.

Árgangaverðlaun fyrir besta árangur drengja og stúlkna fengu:
f.2017
Emilía Klara Tómasdóttir
Nói Ingvaldsson
Vedansh Kalashri
f.2018
Jón Fenrir Ragnarsson
Karítas Thea Daðadóttir
Vilborg Anna Ragnars
Í yngri flokki 2 (f.2019) varð Finnur Árnason efstur með fullt hús, 5 vinninga. Í 2. sæti varð Bjarni Benediktsson með 4 vinninga og í 3. sæti varð Björgvin Þór Jónsson með 4 vinninga, en lægri á mótsstigum. Þessir þrír og Viktoría Robyn Roberts fengu árgangaverðlaunin í þessum flokki.

Í yngsta flokknum, yngri flokki 3 (f.2020 og síðar) varð Sverrir Ingi Haraldsson efstur með 5 vinninga. Í 2. sæti varð Ivan Prudnykov með 4 vinninga og í 3. sæti varð Hákon Guðbjartsson, einnig með 4 vinninga en lægri á mótsstigum.

Árgangaverðlaunin fengu
f.2020
Sverrir Ingi Haraldsson
Ivan Prudnykov
Sigríður Rut Rútsdóttir
Sóley Lotta Elvudóttir
f.2021
Guðni Þór Guðnason
Óskar Magnússon
Heiðar Logi Þorgeirsson
Þorvaldur Lárusson
Sjá myndasafn Skáksambandsins: Yngri flokkar
Eftir hádegi fór svo fram opni flokkurinn. Þar byrjuðu Birkir Hallmundarson og Haukur Víðis Leósson best með fullt hús eftir fjórar umferðir og gerðu svo jafntefli í 5. umferð. Birkir náði svo að sigra í tveimur síðustu skákunum á meðan Haukur tapaði fyrir Örvari Hólm Brynjarssyni í síðustu umferð.
Þar með vann Birkir Hallmundarson mótið með sex og hálfan vinning, Örvar Hólm Brynjarsson varð í öðru sæti með 6 vinninga og Haukur Víðis Leósson varð þriðji með fimm og hálfan vinning. Þar sem hvorki Birkir né Örvar eru félagsmenn í TR, varð Haukur Drengjameistari Taflfélags Reykjavíkur 2026 og er þetta í fyrsta sinn sem hann vinnur þann titil. Stúlknameistari Taflfélags Reykjavíkur 2026 varð svo Alexandra Voron Aðalsteinsdóttir og er þetta í annað sinn sem hún vinnur þann titil.


Árgangaverðlaunin fengu:
f.2011
Nökkvi Hólm Brynjarsson og Dagur Kári Steinsson
f.2012
Örvar Hólm Brynjarsson og Emil Finnsson Fenger
f.2013
Birkir Hallmundarson og Anh Hai Tran
f.2014
Haukur Víðis Leósson og Katrín Ósk Tómasdóttir
f.2015
Pétur Úlfar Ernisson og Jaagruthi Kalasthri
f.2016
Dagur Sverrisson og Halldóra Dögg Jónsdóttir
f.2017
Róberg Heiðar Skúlason og Emilía Klara Tómasdóttir
f.2018
Helgi Fannar Óðinsson
Sjá myndasafn Skáksambandsins: Opin flokkur


















