Moldóvski stórmeistarinn Ivan Schitco er búinn að hrifsa efsta sætið á Sel Hótel Mývatn/Mývatn Öl skákmótinu. Ivan lagði Vigni Vatnar að velli með svörtu mönnunum en þessi skák var illa útfærð af hálfu Vignis. Vignir er í öðru sæti ásamt Simon Williams og Stefáni Bergssyni og þessir fjórir munu berjast um sigurinn á mótinu í lokaumferðinni.
Vignir hafði hvítt og fékk ekkert úr byrjuninni. Ivan hrifsaði fljótt frumkvæðið og byrjaði að pressa á hvítu stöðuna. Vignir gaf peð til að blíðka goðin en náði aldrei að vinna sig inn í skákina og var þetta fyrsta skákin til að klárast á háborðunum. Skák til að gleyma sem fyrst hjá Vigni og nú þarf hann að vinna sína skák í lokaumferðinni og treysta á smá hjálp frá öðrum.
Dagur hafði hvítt gegn Simon og fréttir bárust af alls kyns reyndum skákmönnum um allt land sem tognuðu á heiladingli við það að sjá 12.g4?!?!?? í byrjuninni hjá Degi.
Eru veikleikarnir til langs tíma virði rýmisins sem skapast í staðinn? Skákmenn í dag eru kannski orðnir opnari fyrir svona leikjum en gamlir pósaskákmenn fá alls kyns kvilla við að sjá svona leiki!
Simon fékk klárlega betri stöðu, einmitt útaf veikleikunum á svörtu reitunum, en náði ekki að klóra sig í gegn. Dagur komst í endatafl þar sem hann hafði mögulega betri sénsa en Simon var vandanum vaxinn og náði að halda jafnteflinu.
Hilmir virtist vera að fá aðeins betra í miðtaflinu gegn Gauta Páli en fannn ekki leið í gegn á c-línunni. Gauti fékk hættulegt mótspil og Hilmir missti öll tök á stöðunni. Gauti átti klárlega betri leiðir í endataflinu en fann ekki góða leið til að pressa á Hilmi og náði Íslandsmeistarinn að búa til virki (e. fortress) með hrók og biskup gegn drottningu og engin leið í gegn.
Stefán Steingrímur hefur blandað sér óvænt í toppbaráttuna. Eftir góðan sigur á búlgörsku landsliðskonunni fyrr í dag lagði hann nú Björn Þorfinnsson óvænt að velli. Stefán vann sig út úr erfiðu miðtafli og sneri taflinu sér í hag. Glæsilega gert hjá honum!
Skemmtilegt að Ivan mætti fyrstaborðs manni Íslands en kærasta hans, Gerghana fékk líka fyrsta borð Íslands úr kvennaflokki en hún mætti Lenku.
Iðunn Helgadóttir lenti í miklu basli með að leggja Ástu, skólasystur sína fyrrverandi úr MR, að velli en hafði það að lokum.
Neil Murtagh sem kom á mótið alla leið frá Írlandi náði sínum fyrsta kappskáksigri á mótinu.

Skákir 5. umferðar á lichess:
Úrslit 5. umferðar:
Staðan:
Ivan einn efstur og svo eru þrír hálfum vinningi á eftir
Pörun 6. umferðar:
Stefán óvænt mættur á toppinn, heldur hann áfram að koma á óvart? Bræðurnir Lárus og Ingi Hafliði mætast AFTUR í lokaumferðinni, eins og á síðasta Goðamóti hér 2025!
Keppendalisti:

Upplýsingar um mótið:
Fimm stórmeistarar taka þátt í mótinu og fjórir alþjóðlegir meistarar. Keppendur koma frá fimm þjóðlöndum og eru af öllum styrkleikum. Sjá mótið á chess-results
Allar skákir mótsins verða í beinni á lichess.com
Nánari upplýsingar um mótið.
6 umferða opið alþjóðlegt skákmót, teflt á fjórum dögum, í einum opnum flokki og reiknað til kappskákstiga hjá FIDE.
Tímamörk
90 mínútur fyrir alla skákina með 30 sek viðbótartíma fyrir hvern leik frá og með fyrsta leik. Sjálfkrafa tap dæmist á keppanda sem mætir á skákstað meira en 30 mínútum eftir upphaf umferðar.
Dagskrá.
1 Umferð 19.11.2026 kl 19:00
2 Umferð 20.11.2026 kl 10:00
3 Umferð 20.11.2026 kl 16:00
4 Umferð 21.11.2026 kl 10:00
5 Umferð 21.11.2026 kl 16:00
6 Umferð 22.11.2026 kl 10:00
Oddastig (tiebreaks): 1. Fleiri tefldar skákir 2. Buchholz (-1) 3. Buchholz 4. Innbyrðis úrslit 5. Sonneborn-Berger 6. Oftar svart.
Yfirsetu reglur. (bye rules) Skákmönnum verður heimilt að taka tvisvar sinnum hálfs vinnings yfirsetu (bye) í umferðum 1-5, að því tilskildu að þeir gefi nægan fyrirvara. Með nægum fyrirvara telst hafa verið gefinn áður en öllum skákum er lokið í umferðinni á undan fyrirhugaðri yfirsetu umferð.
Verðlaun
1 sæti 150.000 kr
2 sæti 100.000 kr
3 sæti 50.000 kr
Verðlaunum verðu skipt verði keppendur jafnir að vinningum
Topp 65+ 25.000 kr (+/- 170 €)
Topp U-18 ára 25.000 kr
Topp U-1800 elo 25.000 kr
Topp stiglaus 25.000 kr
Heildarverðlaun: 400.000 kr ( +/- 2790 €)
Ef sérstakur U-2000 elo flokkur verður eru verðlaun þar fyrir 1. sætið 50.000 kr
Þátttökugjöld
kr. 10.000
kr. 7.000 fyrir 18 ára og yngri og stiglausa.



















