Fyrstu alvöru óvæntu úrslitin duttu í hús í annarri umferð á Sel Hótel Mývatn/Mývatn Öl skákmótinu sem haldið er í Skjólbrekku í Mývatnssveit. Blikinn knái Arnar Milutin Heiðarsson lagði þá stórmeistarann Stuart Conquest að velli með hernámi! Önnur úrslit voru meira og minna eftir bókinni. Stórmeistarinn Bragi Þorfinnsson samdi stutt gegn Stefáni en hann þarf líklegast að hætta þátttöku vegna botnlangakasts.

Arnar hafði hvítt og fékk fljótt betra tafl í miðtaflinu. Hann náði að tefla ansi lengi í kringum lélegan biskup svarts sem hýrðist úti á kanti eins og illa gerður hlutur meiri hluta skákarinnar. Fínn sigur hjá Arnari og sanngjarn!

Lenka náði að leggja Íslandsmeistarann, Hilmi Frey, að velli. Lenka fékk þægilegra endatafl með þéttan biskup gegn riddara og peð á báðum vængjum. Vörn Hilmis var of erfið og verkefnið varð of stórt, Lenka náði í góðan sigur.

Stórmeistarinn Simon Williams var boðið upp í dans af Gauta Páli, 3…b5 býður oft upp á óræðar stöður, eitthvað sem Simon þrífst í og Gauti hefur bara svo andskoti gaman af þessu öllu saman! Úr varð skemmtileg skák þar sem Simon blés til sóknar en missteig sig þó aðeins í miðtaflinu. Gauti náði ekki að refsa og Simon endaði á að brjótast í gegn.

Vignir bauð einnig upp í dans á efst borði. Hann hafði lengst af erfiða stöðu og lenti í krefjandi vörn. Gerghana fórnaði manni og hafði hörku kóngssókn. Vignir varðist vel og Gerghana missti tökin. Í 28. leik getur hvítur teflt taflið hróki undir og tölvan spýtir bara út 0.00 eða jafnt tafl, magnað!

Josef átti nettan lokahnykk eftir 49…Rc4? hjá Páli Andrasyni

50.Hxc4! og svartur gafst upp.

Skákir 2. umferðar á lichess:

Úrslit 2. umferðar:

Staðan:


Pörun 3. umferðar:

Baráttan harðnar enn! Seinni umferðin hefst klukkan 16:00.

Keppendalisti:

 

Upplýsingar um mótið:

Fimm stórmeistarar taka þátt í mótinu og fjórir alþjóðlegir meistarar. Keppendur koma frá fimm þjóðlöndum og eru af öllum styrkleikum. Sjá mótið á chess-results

Allar skákir mótsins verða í beinni á lichess.com

Nánari upplýsingar um mótið.
6 umferða opið alþjóðlegt skákmót, teflt á fjórum dögum, í einum opnum flokki og reiknað til kappskákstiga hjá FIDE.

Tímamörk
90 mínútur fyrir alla skákina með 30 sek viðbótartíma fyrir hvern leik frá og með fyrsta leik. Sjálfkrafa tap dæmist á keppanda sem mætir á skákstað meira en 30 mínútum eftir upphaf umferðar.

Dagskrá.
1 Umferð 19.11.2026 kl 19:00
2 Umferð 20.11.2026 kl 10:00
3 Umferð 20.11.2026 kl 16:00
4 Umferð 21.11.2026 kl 10:00
5 Umferð 21.11.2026 kl 16:00
6 Umferð 22.11.2026 kl 10:00

Oddastig (tiebreaks): 1. Fleiri tefldar skákir 2. Buchholz (-1) 3. Buchholz 4. Innbyrðis úrslit 5. Sonneborn-Berger 6. Oftar svart.

Yfirsetu reglur. (bye rules) Skákmönnum verður heimilt að taka tvisvar sinnum hálfs vinnings yfirsetu (bye) í umferðum 1-5, að því tilskildu að þeir gefi nægan fyrirvara. Með nægum fyrirvara telst hafa verið gefinn áður en öllum skákum er lokið í umferðinni á undan fyrirhugaðri yfirsetu umferð.

Verðlaun
1 sæti 150.000 kr
2 sæti 100.000 kr
3 sæti 50.000 kr

Verðlaunum verðu skipt verði keppendur jafnir að vinningum

Topp 65+ 25.000 kr (+/- 170 €)
Topp U-18 ára 25.000 kr
Topp U-1800 elo 25.000 kr
Topp stiglaus 25.000 kr

Heildarverðlaun: 400.000 kr ( +/- 2790 €)
Ef sérstakur U-2000 elo flokkur verður eru verðlaun þar fyrir 1. sætið 50.000 kr

Þátttökugjöld 

kr. 10.000
kr. 7.000 fyrir 18 ára og yngri og stiglausa.

Mótið á chess results

- Auglýsing - Arion Banki-styrktaraðili Minningarmóts Friðriks Ólafssonar