Moldóvski stórmeistarinn Ivan Schitco vann sigur á Sel Hótel Mývatn/Mývatn Öl skákmótinu. Ivan mætti Stefáni Bergssyni í lokaumferðinni og náði að knésetja hann og endaði efstur með 5,5 vinning úr 6 skákum. Vignir Vatnar Stefánsson og Simon Williams komu í mark heilum vinningi á eftir Ivan eftir jafntefli í innbyrðisskák þar sem Simon var með Vigni gjörsamlega í köðlunum. Örn Leó læddist upp í bronssætið á oddastigum í lokaumferðinni.
Ivan náði að véla peð af Stefáni en Stefán fékk ágætis bætur fyrir peðið. Þegar líða tók á náði Ivan að koma skikkan á liðsskipan hvítu stöðunnar og fór í kóngssókn sem bar árangur.

Vignir þurfti á öllum sínum varnarhæfileikum að halda gegn Simon eftir að hafa fengið á sig sleggju snemma tafls.
11.f5! gefur hvítum yfirburðatafl en Simon, eins góður sóknarskákmaður og hann er, náði ekki að finna náðarhöggið og á endanum slapp Vignir fyrir horn eftir að hafa þurft að fara á léttan rúnt með kónginn í miðtaflinu!

Örn Leó læddi sér upp töfluna þegar Hallgerður lék skelfilega af sér í jafnteflisstöðu
39.Hxh7?? tapar einfaldlega eftir 39…Hc4+ og fer svo bakvið peðið.

Björn Þorfinnsson fékk líka gjöf gegn Arnari Milutin
28…Hcd8?? og svartur getur gefið eftir 29.Dh4+
Skákir 6. umferðar á lichess:
Úrslit 6. umferðar:
Lokastaðan:

Glæsilegur og öruggur sigur hjá Ivan!
Keppendalisti:

Upplýsingar um mótið:
Fimm stórmeistarar taka þátt í mótinu og fjórir alþjóðlegir meistarar. Keppendur koma frá fimm þjóðlöndum og eru af öllum styrkleikum. Sjá mótið á chess-results
Allar skákir mótsins verða í beinni á lichess.com
Nánari upplýsingar um mótið.
6 umferða opið alþjóðlegt skákmót, teflt á fjórum dögum, í einum opnum flokki og reiknað til kappskákstiga hjá FIDE.
Tímamörk
90 mínútur fyrir alla skákina með 30 sek viðbótartíma fyrir hvern leik frá og með fyrsta leik. Sjálfkrafa tap dæmist á keppanda sem mætir á skákstað meira en 30 mínútum eftir upphaf umferðar.
Dagskrá.
1 Umferð 19.11.2026 kl 19:00
2 Umferð 20.11.2026 kl 10:00
3 Umferð 20.11.2026 kl 16:00
4 Umferð 21.11.2026 kl 10:00
5 Umferð 21.11.2026 kl 16:00
6 Umferð 22.11.2026 kl 10:00
Oddastig (tiebreaks): 1. Fleiri tefldar skákir 2. Buchholz (-1) 3. Buchholz 4. Innbyrðis úrslit 5. Sonneborn-Berger 6. Oftar svart.
Yfirsetu reglur. (bye rules) Skákmönnum verður heimilt að taka tvisvar sinnum hálfs vinnings yfirsetu (bye) í umferðum 1-5, að því tilskildu að þeir gefi nægan fyrirvara. Með nægum fyrirvara telst hafa verið gefinn áður en öllum skákum er lokið í umferðinni á undan fyrirhugaðri yfirsetu umferð.
Verðlaun
1 sæti 150.000 kr
2 sæti 100.000 kr
3 sæti 50.000 kr
Verðlaunum verðu skipt verði keppendur jafnir að vinningum
Topp 65+ 25.000 kr (+/- 170 €)
Topp U-18 ára 25.000 kr
Topp U-1800 elo 25.000 kr
Topp stiglaus 25.000 kr
Heildarverðlaun: 400.000 kr ( +/- 2790 €)
Ef sérstakur U-2000 elo flokkur verður eru verðlaun þar fyrir 1. sætið 50.000 kr
Þátttökugjöld
kr. 10.000
kr. 7.000 fyrir 18 ára og yngri og stiglausa.


















