Kristján Ingi Smárason vann öruggan sigur á skákþingi Goðans 2026 sem fram fór í Túni á Húsavík í dag. Sigur Kristjáns var nokkuð öruggur þar sem hann vann fimm skákir og gerði eitt jafntefli. Þetta er í fyrsta skiptið sem Kristján vinnur titilinn Skákmeistari Goðans

Ádám Gulyás varð annar með 4 vinninga og Smári Sigurðsson varð þriðji með 3,5 vinninga.
Lokastaðan. Mótið á chess manager.

Tímamörk voru 10+2 og allir tefldu við alla. Illa gekk að koma skákþinginu á dagskrá á árinu 2026, en venjulega fer það fram snemma á árinu. Í óefni stefndi þegar ákveðið var að halda mótið sem atskákmót á einum degi í dag. Ljóst er að Kristján mun ekki halda titilinum langt inn í nýtt ár, nema þá að hann vinni næsta skákþing árið 2027. Þess má geta að Kristján græðir heil 74 atskákstig eftir mótið í dag.

















