Atskákmeistarar taflfélaga 2026!

Atskákkeppni taflfélaga fór fram í 6. sinn laugardaginn 14. nóvember síðastliðinn. 18 lið mættu til leiks, sem er met, mest höfðu 16 lið tekið þátt. Nokkur félög voru að taka þátt í fyrsta sinn á mótinu! Það voru Skákdeild Hauka, Skákfélag Mosfellsbæjar og Íþróttafélagið Snóker og Pool. Einnig sendu Skákfélag Selfoss og nágrennis og Taflfélag Vestmannaeyja í fyrsta sinn B-sveit til leiks. Við fögnum öllum nýliðum á þessu skemmtilega móti! 

Frá keppnissalnum

Breytt fyrirkomulag var á mótinu, sem almennt þótti lukkast nokkuð vel. Í stað níu umferða sem tefldar voru á tveimur kvöldum, var allt mótið sjö umferðir og teflt á einum laugardegi. Mótið tók rétt rúma fjórar klukkustundir. Um 130 skákmenn mættu og tefldu fyrir hönd sinna félaga. Mótshaldari var Taflfélag Reykjavíkur. 

 

Atskákmeistarar taflfélaga 2026!

Skákdeild Fjölnis vann mótið í ár mjög örugglega, vann allar sínar viðureignir og fékk 14 liðsstig og 32½ vinning. Þetta er glæsilegur árangur hjá Fjölni og í fyrsta sinn sem félagið vinnur þetta mót. Stórmeistarinn Bragi Þorfinnsson vann allar skákir sínar sjö fyrir Fjölni. Jón Trausti Harðarson náði einnig eftirtektarverðum árangri hjá Fjölni og græddi 52 stig. Í öðru sæti urðu fráfarandi atskákmeistarar, Skákdeild Breiðabliks, með 12 liðsstig og 27½ vinning. Í þriðja sæti varð Taflfélag Reykjavíkur, með 9 liðsstig og 29 vinninga. Efst B-liða var B-lið Taflfélags Reykjavíkur, einnig með 9 liðsstig og 21½ vinning. Bestum einstaklingsárangri í mótinu náði Nökkvi Hólm Brynjarsson með 120 stiga hækkun. 

Blikar lentu í 2. sæti og söknuðu vafalaust Vignis sem var vant við látinn!
TR hafði þrjá stórmeistarara í sínum röðum en Jón L. Árnason tefldi fyrstu fjórar skákirnar.
Adam og Gauti tefldu á efstu borðum B-sveitar og Magnús bjargaði málunum í lokaumferðinni þegar nokkrir liðsmenn þurftu frá að hverfa.

Á chess results má sjá öll liða- og einstaklingsúrslit. 

Aðaldómari í mótinu var IA Jon Olav Fivelstad með góðri aðstoð Magnúsar Kristinssonar formanns TR. 

Myndir tók Tómas Tandri Jóhannsson og sjá má þær hér. 

Sjáumst að ári í atskákkeppni taflfélaga! 

Ykkar einlægur, Gauti Páll 

- Auglýsing - Skákskóli Íslands – upplýsingar um haustönn