Skjólbrekka

Nú eru aðeins 4 dagar þangað til Sel Hótel Mývatn/Mývatn Öl skákmótið hefst í Skjólbrekku í Mývatnssveit. 41 keppendur eru nú þegar skráðir til leiks og nægt pláss er fyrir fleiri í Skjólbrekku.

Sel Hótel er því miður fullbókað og aðeins eitt herbergi er laust á Skútustaðir Gistiheimil. En það eru margir aðrir gistimöguleikar í Mývatnsveit og nágrenni, en enginn þeirra í göngufæri við mótsstaðinn Skjóbrekku nema Sel Hótel og Skútustaðir Gistiheimili.

Hótel Laxá er í 3.5 km fjarlægð frá Skjólbrekku. Þar er talsvert laus af herbergjum 19-22 nóvember

Eldá gistiheimili í Reykjahlíð en þar eru herbergi laus

Mývatn – Berjaya Iceland Hotels er einnig í Reykjahlíð og þar eru laus herbergi umrædda daga.

Framangreindir gististaðir eru í 15-20 km fjarlægð frá Skjólbrekku. Áhugasamir um þátttöku í mótinu eru því hvattir til að bóka gistingu sem fyrst.

Skráningu í mótið lokar á hádegi 19. nóvember og parað verður í 1. umferð kl 16:00 sama dag.

Vefur mótsins

- Auglýsing - Skákskóli Íslands – upplýsingar um haustönn