Friðrik við upphaf Reykjavíkurskákmótsin 2023 þar sem hann samfagnaði nýjasta kolleganum úr stórmeistarastétt, Vigni Vatnari.
Friðrik Ólafsson (26. janúar 1935 – 4. apríl 2025) var fyrsti Íslendingurinn til að verða stórmeistari, árið 1958. Hann varð sexfaldur Íslandsmeistari, tvöfaldur Norðurlandameistari og gegndi embætti forseta Alþjóðaskáksambandsins (FIDE) árin 1978–1982.
Friðrik átti gríðarlegan þátt í að efla skákmenningu á Íslandi og ruddi meðal annars brautina fyrir heimsmeistaraeinvígið milli Fischer og Spassky í Reykjavík 1972. Hann var heiðursfélagi bæði Taflfélags Reykjavíkur og Skáksambands Íslands, heiðursborgari Reykjavíkur og sæmdur stórriddarakrossi Hinnar íslensku fálkaorðu.
Mótið er níu umferðir og taka 25 skákmenn þátt. Mótið er opið skákmönnum með meira en 2000 skákstig auk örfáum stigalægri keppendum. Mótinu er ætlað að styðja við sterkustu skákmenn okkar og veita þeim tækifæri til að tefla við sterka erlenda keppendur.
Meðal keppenda eru sterkustu skákmenn Íslands, þar á meðal stórmeistararnir Vignir Vatnar Stefánsson, Helgi Áss Grétarsson og Guðmundur Kjartansson, auk erlendra keppenda frá meðal annars Noregi, Moldóvu og Norður-Makedóníu.
Arion banki, Reykjavíkurborg og FIDE eru aðalstyrktaraðilar mótsins.
Dagskrá mótsins:
  • Þriðjudagur 24. nóvember: 1. umferð kl. 16:00
  • Miðvikudagur 25. nóvember: 2. umferð kl. 10:00 og 3. umferð kl. 16:00
  • Fimmtudagur 26. nóvember: 4. umferð kl. 10:00 og 5. umferð kl. 16:00
  • Föstudagur 27. nóvember: 6. umferð kl. 16:00
  • Laugardagur 28. nóvember: 7. umferð kl. 10:00 og 8. umferð kl. 16:00
  • Sunnudagur 29. nóvember: 9. umferð kl. 10:00
Pörun fyrstu umferðar verður birt kl. 12. Tenglar á beinar útsendingar koma fyrir umferð.
- Auglýsing - Arion Banki-styrktaraðili Minningarmóts Friðriks Ólafssonar