Barnaskákmót KR fór fram laugardaginn 21. nóvember 2026 sem fram fór í Samfélagshúsinu Aflagranda 40. Í eldri flokki (4.-10. bekkur) tóku 64 keppendur þátt.
Í yngri flokki tóku þátt 40 keppendur. Samtals tefldu því 104 keppendur á mótinu í
báðum flokkum sem er met. Fyrra met var 82 keppendur frá því apríl 2026 (46 í eldri
flokki og 36 í yngri flokki).
Katín Ósk Tómasdóttir vann eldri flokkinn með 6,5 vinninga í umferðum. Í öðru sæti varð Jónatan Leó Daðason með 6 vinninga. Í þriðja sæti var Anh Hai Tran, einnig með 6 vinninga en færri oddastig. Katrín var að vinna sitt 4. KR mót (hún vann einnig mótin í janúar 2026,
febrúar 2026 og september 2026). Katrín teflir einnig oft á fullorðinsmótum KR
(árdegismót á laugardögum og aftanmót á mánudögum). Það er því óhætt að segja að Katrín kunni vel við sig á KR mótum.

Jón Fenrir Ragnarsson vann yngri flokkinn með 7 vinninga í 7 skákum. Í öðru sæti varð Tauras Nareika með 6 vinninga og í þríðja sæti varð Múli Björgvin Marteinsson með 5,5 vinninga. Þetta var annar sigur Jón Fenris á KR móti því hann vann einnig yngri flokkinn í september. Sá sem oftast hefur unnið yngri flokkinn er Róbert Heiðar Skúlason. Hann hefur unnið flokkinn þrisvar sinnum.














