Þórunn Sveinbjarnardóttir, forseti Alþingis, setti í gær sjöundu umferð minningarmóts um Friðrik Ólafsson í gær. Hún settist á þing 1999 og er einn tveggja þingmanna sem tók fyrst sæti þá. Hún semsagt var samtíða Friðriki á Alþingi í nokkur ár en Friðrik var skrifstofustjóri frá 1985-2005.

Jóhanna Björg Jóhansdóttir, forseti SÍ, bauð hana sérstaklega velkomna. Þórunn Hún lék svo fyrsta leikinn fyrir Vignir Vatnar á fyrsta borði.

Gauti Páll Jónsson færði henni og Jan Lundin, sendiherra Svíþjóðar á Íslandi, nýjasta tölublaðið af Tímaritinu Skák. Skömmu síðar settust Gauti og Lundin andspænis öðrum og tefldu lengstu skák mótsins!

Lokaumferðin hefst kl. 10. Verðlaunaafhending mótsins verður kl. 15.
Áhugasamir eru velkomnir að kíkja við þeir sem vilja geta krækt sér í nýjasta eintak Tímaritsins Skákar.


















