Þriðju skák heimsmeistaraeinvígisins milli Javokhirs Sindarovs og heimsmeistarans Gukesh Dommaraju lauk með jafntefli eftir 60 leiki í Genf í dag.

Staðan er því 1½–1½ eftir þrjár skákir. Ólíkt 20 leikja jafnteflinu í gær var nú sannarlega barist: heimsmeistarinn kom áskorandanum á óvart í byrjuninni, náði miklu tímaforskoti og báðir reyndu að skapa færi í flóknu endatafli.

Í umfjöllun okkar um aðra skákina var rætt um skuggabox og þreifingar í upphafi heimsmeistaraeinvígja. Það var ekki fjarri lagi þá, en í dag fóru menn að láta til sín taka. Enn vantar fyrsta sigurinn, en við fengum að minnsta kosti tæplega fimm klukkustunda baráttuskák í stað þess að fara heim eftir 20 leiki!

Brasilískur blær á Berlínarvörnina

Sindarov hafði hvítt og hóf aftur taflið með 1.e4. Rétt eins og í fyrstu skákinni svaraði Gukesh með Berlínarvörninni í spænska leiknum. Í stað hins þekkta 5…Rd6 kom þó óvænt 5…Be7!?, svokallað Rio de Janeiro-afbrigði. Þar með var heimsmeistarinn búinn að færa átökin frá vel troðnum stígum og útbúa undirbúningspróf fyrir Úsbekann unga!

Afbrigðið á sér langa sögu. Viktor Kortsnoj beitti því meðal annars gegn Anatoly Karpov í heimsmeistaraeinvíginu 1981. Skemmtilega tilviljun mátti heyra í beinni útsendingu FIDE: Peter Leko rifjaði upp að hann hefði undirbúið einmitt þessa hugmynd gegn Vladimir Kramnik fyrir lokaeinvígisskákina árið 2004, en ekki treyst sér til að leggja hana á borðið. Hann tapaði þeirri skák og missti af heimsmeistaratitlinum.

Í dag lét Gukesh hins vegar vaða. Hann lék nánast án umhugsunar fram að 15…Dc4, enda var þetta allt hluti af undirbúningi hans. Sindarov hafði séð 5…Be7 í undirbúningi sínum, en viðurkenndi síðar að hann hefði ekki skoðað stöðuna nægilega djúpt. Þegar komið var að 16. leik hafði heimsmeistarinn því náð nærri 50 mínútna tímaforskoti – algjör viðsnúningur frá fyrstu skákinni þegar Gukesh var sjálfur í mikilli tímaþröng.

Mislitir biskupar – en baráttunni hvergi nærri lokið

Eftir 16.b3 Dxd4 17.Bxd4 hurfu drottningarnar af borðinu. Sindarov hafði ágæta peðastöðu, en Gukesh var greinilega vel að sér í þeim áætlunum sem staðan bauð upp á. Svartur beitti sér meðal annars með 20…g5 og 21…Kd7, áður en 22.Rc5+ Bxc5 23.Bxc5 leiddi til endatafls með mislitum biskupum.

Mislitir biskupar eru oft ávísun á jafntefli, en það gildir ekki sjálfkrafa þegar hrókarnir eru enn á borðinu. Þá geta árásir, opnar línur og virkni kónganna skipt öllu máli. Báðir keppendur sáu því ástæðu til að halda áfram og reyna að setja andstæðinginn undir pressu.

29.f4 – lykilaugnablik skákarinnar

Gukesh færði biskupinn frá f5 til c4 með 27…Bd3 og 28…Bc4. Þá kom 29.f4! frá Sindarov og staðan lifnaði svo sannarlega við. Hvítur reyndi að opna kóngsvænginn og nýta sér að svarti biskupinn var kominn langt frá þeim vígvelli.

Á blaðamannafundinum sagði Gukesh að hann hefði séð fyrir sér einhvers konar peðaframrás á kóngsvængnum en yfirsést einmitt f4 í þessari stöðu. Honum hefði ekki litist vel á blikuna en taldi sig hafa fundið skýra leið til að halda jafnvæginu.

Sindarov var hins vegar ekki fullkomlega sáttur við eigin ákvörðun. Eftir skákina taldi hann að líklega hefði verið betra að undirbúa framrásina með 29.h3 og halda áfram að þrýsta hægt og bítandi.

„Ég þurfti líklega ekki að leika 29.f4,“ sagði hann í lauslegri þýðingu á blaðamannafundinum.

Það er auðvelt að vera vitur eftir á, en í heimsmeistaraeinvígi getur ákvörðunin um hvenær á að breyta stöðunni ráðið öllu.

Eftir 29…gxf4 30.Hf3 Hba8 31.h3 Kf5 32.g3 tóku við flóknar tilfæringar. Gukesh náði að losa um stöðuna með 33…c5 og eftir 34.Bxc5 d4 35.Hxf4 Bd5+ 36.Kf2 d3 var svartur kominn með hættulegt frípeð á d3. Hvítur þurfti að sýna nákvæma varnartaflmennsku, þótt mislitir biskupar gerðu enn erfitt fyrir svart að knýja fram sigur.

Sex sekúndur á klukkunni!

Mesta dramatíkin var þó á klukkunni. Sindarov hafði eytt miklum tíma í byrjuninni og þurfti nú að ná 40 leikjum án þess að falla á tíma. Eftir 39.Bb4 Bxb5 átti hann aðeins örfáar sekúndur eftir og lék 40.Hc1 með um sex sekúndur á klukkunni. Gukesh svaraði 40…c6 og keppendur fengu viðbótarhálftímann sem fylgir tímamörkunum.

Eftir það reyndi Gukesh áfram að nýta sér d-peðið og virka kóngsstöðu. Með 42…f5+ skapaði hann frekari sviptingar, en eftir skipti á hrókunum var komið upp endatafli þar sem svartur hafði peði meira en biskuparnir voru enn mislitir. Sindarov hélt ró sinni og fann nægilega trausta vörn.

Að lokum, eftir 60…Kf3, sömdu keppendur um jafntefli. Frípeðið á d3 var vissulega komið langt, en biskup hvíts hélt aftur af því og ekkert raunhæft var eftir að reyna.

„Spassky er ekki einn af aðstoðarmönnum mínum!“

Blaðamannafundurinn eftir skákina var nokkuð líflegur. Gukesh var spurður út í gamla skák þeirra Ljubomirs Ljubojevic og Boris Spassky frá árinu 1988, þar sem sömu hugmyndir komu við sögu. Heimsmeistarinn svaraði að hann þekkti skákina og bætti svo við í léttum dúr:

„Ég get upplýst að Spassky er ekki einn af aðstoðarmönnum mínum!“

Sindarov viðurkenndi hins vegar að hann hefði aldrei heyrt af viðkomandi skák.

Gukesh hrósaði jafnframt undirbúningsteymi sínu fyrir Rio-afbrigðið. Sindarov sagðist hafa þurft að hugsa óvenju mikið í byrjuninni, en verið ánægður með að hafa varið sig vel þegar pressan jókst.

Þegar heimsmeistarinn var spurður hvort þrjú jafntefli í röð ykju pressuna á keppendurna benti hann á að 14 skákir væru á dagskrá og enn væri langt í land. Jafnteflin væru ekki endilega merki um að lítið væri að gerast – þau gætu líka sýnt að gæði skákanna væru mikil og erfitt væri að sigra jafningja á þessu styrkleikastigi skákarinnar!

Skemmtilegast var kannski að heyra Gukesh ræða sálfræðina. Hann sagði að í löngu einvígi gegn sama andstæðingi færi stöðugt fram ákveðinn leikur á bak við tjöldin, þar sem báðir reyndu að vera skrefi á undan hinum.

Þetta er einmitt það „skuggabox“ sem hefur einkennt fyrstu daga einvígisins – þó að höggin hafi að þessu sinni verið mun þyngri.

Skákin í heild:

Hvíldardagur – fjórða skákin á laugardag

Staðan eftir þrjár skákir: Gukesh – Sindarov 1½–1½. Enn hefur engin skák unnist og aðeins þrjár af fjórtán kappskákum eru að baki.

Föstudagurinn 27. nóvember er hvíldardagur. Fjórða skákin fer fram laugardaginn 28. nóvember klukkan 14:00 að íslenskum tíma. Þá hefur Gukesh hvítt og verður forvitnilegt að sjá hvað hann og aðstoðarmenn hans hafa undirbúið næst.

Hvíldardagurinn verður þó ekki bara notaður í byrjanaundirbúning. Sindarov sagðist ætla að halda upp á afmæli afa síns sem er með honum í Genf, en Gukesh hugðist fyrst og fremst sofa vel og síðan, að sjálfsögðu, undirbúa næstu skák.

Nánar um skákina:

Skákirnar beint:

- Auglýsing - Arion Banki-styrktaraðili Minningarmóts Friðriks Ólafssonar