Stórmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson er meðal þriggja keppenda sem hefur fullt hús að lokinni annarri umferð minningarmóts Friðriks Ólafssonar. Hann vann kollega sinn úr stórmeistarastétt Guðmund Kjartansson í fyrri umferð dagsins.

Ástamt honum hafa stórmeistararnir Aksel Bu Kvalö, Noregi, og Ivan Schitco, Moldóvu, fullt hús vinninga.

Seinni umferð dagsins hefst kl. 16. Vignir teflir við Aksel í viðureign tveggja stigahæstu keppenda mótsins.
Ingvar Þór skrifar ítarlega heildarfrétt um gang beggja umferða dagsins í kvöld.

















