Alþjóðlegt minningarmót um stórmeistarann Friðrik Ólafsson, hófst í dag, þriðjudaginn 24. nóvember, í húsakynnum Taflfélags Reykjavíkur í Faxafeni 12. Strax í fyrstu umferð urðu nokkur óvænt úrslit og ljóst að stigahærri keppendur mega hvergi slaka á. Vignir Vatnar Stefánsson hafði sigur eftir langa og stranga baráttu, en Lenka Ptáčníková og Birkir Hallmundarson stálu senunni með glæsilegum sigrum gegn mun stigahærri andstæðingum.

Mótið er haldið af Skáksambandi Íslands og Taflfélagi Reykjavíkur og stendur yfir dagana 24.–29. nóvember. Tefldar verða níu umferðir með 90 mínútna umhugsunartíma og 30 sekúndna viðbót á hvern leik. Meðal keppenda eru nokkrir af sterkustu skákmönnum Íslands auk öflugra erlendra gesta.

_D0A3137

Stigahæsti keppandi mótsins, stórmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson (2510), fékk svo sannarlega ekki gefins sigur gegn búlgörsku landsliðskonunni og FIDE-meistaranum Gergönu Peychevu (2224).

Upp kom flókin baráttuskák þar sem báðir keppendur fengu sín tækifæri og staðan sveiflaðist talsvert. Þegar líða tók á skákina náði Vignir að skapa sér hættulegt frípeð á b-línunni. Peycheva varði sig af mikilli seiglu og þurfti Vignir að hafa verulega fyrir því að knýja fram úrslit.

Að lokum tókst honum að koma b-peðinu alla leið í borð og tryggja sigur eftir 57 leiki. Mikill baráttusigur hjá Vigni, en sú búlgarska sýndi að hún er til alls líkleg á mótinu.

Ein mestu tíðindi umferðarinnar voru án efa glæsilegur sigur Íslandsmeistarans í kvennaflokki, Lenku Ptáčníkovu (2097), á stórmeistaranum Helga Áss Grétarssyni (2417).

Lenka hafði hvítt og beitti Helgi Áss modern-byrjun eins og svo oft áður og fljótlega kom upp afar tvísýn og spennandi staða. Lenka tefldi af miklum krafti, sótti fram á kóngsvængnum og náði að skapa sér góð færi.

Eftir mikla baráttu kom upp endatafl þar sem Lenka sýndi mikla þrautseigju og hélt skiptamun betur sem hún náði að nýta sér til að knýja fram sigur eftir 58 leiki.

Frábær byrjun hjá Lenku sem sýndi að hún getur vel látið stórmeistarana finna fyrir sér!

Birkir Hallmundarson (1923) átti sömuleiðis frábæran dag þegar hann lagði Josef Ómarsson (2260), en heil 337 Elo-stig skildu keppendurna að fyrir skákina.

Birkir hafði hvítt í drottningarbragði sem Jósef þáði. Fljótlega hurfu drottningarnar af borðinu en það þýddi alls ekki að baráttunni væri lokið.

Birkir tefldi af miklu öryggi og hélt þéttingsfast í sín færi. Í endataflinu tókst honum að skapa sér hættuleg frípeð og nýta ónákvæmni andstæðingsins. Jósef varð að lokum að játa sig sigraðan eftir 49 leiki. Stórglæsilegur sigur hjá Birki.

Það voru fleiri stigahærri skákmenn sem lentu í vandræðum.

Anh Hai Tran (1835) gerði afar gott jafntefli með svörtu gegn kandídatsmeistaranum Birni Holm Birkissyni (2252). Þar munaði hvorki meira né minna en 417 Elo-stigum á keppendunum!

Guðni Pétursson (1987) gerði einnig mjög gott jafntefli með svörtu gegn alþjóðlega meistaranum Birni Þorfinnssyni (2358). Guðni sýndi mikla seiglu og hélt stöðunni saman gegn mun stigahærri andstæðingi.

Flestir hinna stigahæstu stóðust prófið

Aðrir sigurvegarar fyrstu umferðar voru meðal annars norski stórmeistarinn Aksel Bu Kvaløy (2507), sem lagði sænska FIDE-meistarann Jan Lundin, og landi hans, alþjóðlegi meistarinn Tor Fredrik Kaasen (2497), sem hafði betur gegn Þjóðverjanum Laurin Perkampus.

_D0A3175

Moldóvski stórmeistarinn Ivan Schitco (2496) lagði Gauta Pál Jónsson, en Emil Risteski (2435) frá Norður-Makedóníu sigraði FIDE-meistarann Halldór Gretar Einarsson.

Af íslensku stórmeisturunum hafði Guðmundur Kjartansson sigur gegn Jóni Trausta Harðarsyni og Íslandsmeistarinn Hilmir Freyr Heimisson lagði Zachary McDonald Chua frá Kanada.

Tvær umferðir á morgun

Mótið heldur áfram á morgun, miðvikudaginn 25. nóvember, þegar tefldar verða tvær umferðir. Önnur umferð hefst kl. 10:00 og sú þriðja kl. 16:00.

Skákáhugafólk er hvatt til að fylgjast með mótinu, enda má búast við áframhaldandi spennu og hörkubaráttu næstu daga.

Myndapakki frá Tómasi

The Friðrik Ólafsson Memorial Chess Tournament

Gagnlegir hlekkir:

- Auglýsing - Arion Banki-styrktaraðili Minningarmóts Friðriks Ólafssonar