Stórmeistararnir Ivan Schitco frá Moldóvu og Vignir Vatnar Stefánsson ásamt alþjóðlega meistaranum Emil Risteski frá Norður-Makedóníu eru jafnir í efsta sæti á Minningarmótinu um Friðrik Ólafsson með 4 vinninga af 5 mögulegum. Tefldar voru tvær umferðir í Taflfélagi Reykjavíkur í dag, fimmtudaginn 26. nóvember, og það gekk ýmislegt á. Schitco lagði þáverandi „oddafisk“ Aksel Bu Kvaloy að velli í fyrri umferð dagsins en á sama tíma vann Vignir báðar skákir sínar í dag. Óhætt er að segja að allmargir íslenskir skákmenn hafi boðið upp á sannkallaðar sveifluskákir.

Förum yfir helstu tíðindin, fyrst úr 4. umferðinni og síðan þeirri fimmtu.

4. umferð – Schitco lagði Kvaloy

Aksel Bu Kvaloy kom til leiks með fullt hús eftir þrjár umferðir en það breyttist á efsta borði. Norðmaðurinn hafði hvítt gegn Ivan Schitco og úr varð æsispennandi baráttuskák með mörgum sviptingum. Báðir fengu sín færi, en Schitco átti síðasta orðið…hafði hann á orði að hann hafi orðið fyrir hughrifum af skákum Garry Kasparov í svipuðum afbrigðum!

Eftir 35…Hf3 var enn hægt að halda jafnvæginu með 36.Hg3!

…en 36.bxa3?? reyndist afdrifaríkt. Þá kom 36…Dxg7! og Schitco stýrði skákinni til sigurs. Ein af þeim tilfellum þar sem einn leikur í tímahraki býður upp á eigendaskipti í skákinni!

Emil Risteski fylgdi Schitco eftir sigur í langri en strangri skák gegn Íslandsmeistaranum Hilmi Frey Heimissyni. Upp kom drekaafbrigði Sikileyjarvarnar og afar flókin barátta. Hilmir hafði um skeið haldið jafnvægi í erfiðu endatafli, en 56.Ke3?? var skref í ranga átt. Eftir 56…Bg6 fékk Risteski vinningsstöðu og lét ekki tækifærið úr greipum sér ganga.

Vignir vann Luitjen undir vökulum augum Friðriks og Péturs langafa.

Vignir Vatnar þurfti að svara fyrir tapið gegn Kvaloy deginum áður og það gerði hann með sigri á Færeyingnum Luitjen Akselsson Apol. Vignir hafði svart og beitti skandinavísku vörninni. Luitjen náði um tíma mjög álitlegri stöðu og Vignir þurfti að verjast af hörku. Smám saman tókst honum þó að flækja taflið, andstæðingurinn missti tökin og í lokin var það Vignir sem hafði frumkvæðið og knúði fram sigur. Engan veginn auðveld afgreiðsla, en mikilvægur sigur!


Einn af athyglisverðari viðsnúningum dagsins kom í skák Halldórs Grétars Einarssonar og Bárðar Arnar Birkissonar. Bárður hafði fengið stórgóða stöðu og um tíma virtist hann stefna á öruggan sigur. En skákir vinnast ekki fyrr en andstæðingurinn gefst upp! Eftir 31…He5?? snerist taflið á svipstundu.

Halldór nýtti sér tækifærið með 32.Re2 og eftir 33.Dxc5 og 34.Rxg3 var staðan orðin honum í hag. Mögnuð endurkoma!

Af öðrum úrslitum má nefna að Björn Þorfinnsson vann Lenku Ptacnikovu, Guðmundur Kjartansson hafði sigur gegn Birki Hallmundarsyni eftir langa endataflsbaráttu og Josef Ómarsson lagði Guðna Pétursson að velli í mikilli baráttuskák þar sem Guðni krafðist jafntefli of snemma og lék eiginlega af sér í kjölfarið. Norðmaðurinn Tor Fredrik Kaasen vann þá Gergönu Peychevu.

5. umferð – Vignir kemur sér aftur á toppinn

Í seinni umferð dagsins mættust Schitco og Risteski á efsta borði. Hvorugur náði að skapa veruleg færi og sömdu þeir um jafntefli eftir aðeins 23 leiki. Á sama tíma skildu Norðmennirnir Kaasen og Kvaloy einnig jafnir og því opnaðist leið fyrir Vigni að jafna efstu menn.

Vignir tefldi með hvítu gegn Halldóri Grétari Einarssyni, sem hafði einmitt unnið skemmtilega sveifluskák fyrr um daginn. Þeir fengu upp Maroczy stöðu og náði Vignir þægilegu frumkvæði og eftir að drottningar hurfu af borðinu fylgdi hann forskotinu vel eftir í endataflinu. Hann tryggði sér sigur eftir 37.Re5 og lauk deginum því með tvo vinninga af tveimur.


Það var einnig gaman að sjá Helga Áss Grétarsson vinna góðan sigur gegn Luitjen Akselsson Apol. Helgi hafði hvítt og eftir 19…d4?? opnaðist skemmtilegt taktískt tækifæri, Færeyingurinn fékk ekki nægjanlegar bætur fyrir fórnina!

Helgi lék einfaldlega 20.Bxa8! og náði hróknum á a8 og sagði við frænda sinn „sýndu mér bæturnar!“


Íslendingaslagur Björns Þorfinnssonar og Hilmirs Freys Heimissonar reyndist hins vegar mikill slagur. Þar var teflt af krafti og mat tölvunnar sveiflaðist talsvert á köflum. Báðir misstu af tækifærum í flóknu miðtafli og endatafli en að lokum skiptu þeir vinningnum á milli sín. Skák sem áhugavert er að fara yfir með tölvuna sér við hlið!

Guðmundur Kjartansson vann sinn annan sigur á deginum, nú gegn Birni Hólm Birkissyni, og er einnig kominn með 3 vinninga. Gergana Peycheva hafði betur gegn Bárði Erni Birkissyni, Jan Lundin og Josef Ómarsson skildu jafnir, og Jóhann Ragnarsson vann Anh Hai Tran. Einnig vann Guðni Pétursson gegn Birki Hallmundarsyni.

Staðan eftir fimm umferðir

Baráttan um efsta sætið er því galopin og þrír menn eru jafnir á toppnum. Staðan hjá efstu mönnum er þessi:

1. Ivan Schitco (MDA) – 4 vinningar
2. Emil Risteski (MKD) – 4 vinningar
3. Vignir Vatnar Stefánsson (ISL) – 4 vinningar
4. Aksel Bu Kvaloy (NOR) – 3½ vinningur
5. Tor Fredrik Kaasen (NOR) – 3½ vinningur
6. Halldór Grétar Einarsson (ISL) – 3 vinningar
7. Hilmir Freyr Heimisson (ISL) – 3 vinningar
8. Gergana Peycheva (BUL) – 3 vinningar
9. Guðmundur Kjartansson (ISL) – 3 vinningar
10. Björn Þorfinnsson (ISL) – 3 vinningar
11. Laurin Perkampus (GER) – 3 vinningar
12. Helgi Áss Grétarsson (ISL) – 3 vinningar

Í 6. umferð á morgun, föstudaginn 27. nóvember kl. 16:00, verður sannkallaður toppslagur þegar Schitco hefur hvítt gegn Vigni. Á öðru borði mætir Risteski Norðmanninum Kaasen, og Kvaloy fær Guðmund Kjartansson. Enn er því nóg eftir af mótinu og allt getur gerst!

Pörun og nánari úrslit má sjá á Chess-Results og heimasíðu mótsins.

- Auglýsing - Arion Banki-styrktaraðili Minningarmóts Friðriks Ólafssonar