Gunnar Björnsson og Gauti Páll skoðuðu fyrsta eintakið í dag.

Tímaritið Skák er komið út! Blaðið er hnausþykkt, stútfullt af toppefni og segja fróðir menn ritstjóra Skák.is að þetta sé besta tölublaðið til þessa.

Áskrifendur, þeir sem vilja vera áskrifendur, eða þeir sem vilja eingöngu kaupa þetta tölublað eru velkomnir í skákhöllina í Faxafenið til að sækja sér eintak um helgina. Í dag er hægt að nálgast tímaritið á milli 10 og 20 og á morgun á milli 10-14. Heit kaffi á könnunni á skákstað og á sértilboði – frítt!
Blaðið er á sértilboði um helgina. Aðeins 3.500 kr.
Þeir sem ekki eru áskrifendur en vilja skrá sig sem slíkan er bent á skráningaform. 
.
- Auglýsing - Arion Banki-styrktaraðili Minningarmóts Friðriks Ólafssonar