Ljóst er að spennandi taflhelgi er framundan í Faxafeninu en fjórir skákmenn eru efstir og jafnir á Minningarmótinu um Friðrik Ólafsson með 4,5 vinninga af 6 skákir. Síðustu þrjár umferðirnar verða tefldar um helgina. Þeir Ivan Schitco og Vignir Vatnar gerðu stutt jafntefli innbyrðis en þeir eru í efsta sætinu ásamt Emil Risetski og Norðmanninum Aksel Bu Kvaløy sem vann sína skák í sjött umferðinni.
Skák Ivans og Vignis varð mjög stutt, tefld var Petroffs vörn og bauð Ivan jafntefli mjög snemma og ljóst að þeir félagarnir eru ef til vill örlítið þreyttir á að tefla innbyrðis en þeir tefldu einnig um síðustu helgi. Emil Risetski gerði einnig stutt jafntefli í sinni skák.
Kvaløy nýtti sér þessar friðarpípur og jafnaði við efstu menn með því að leggja Guðmund Kjartansson að velli í strategískt flókinni skák.
Búlgarska landsliðskonan Pechava náði góðri kóngssókn gegn Helga Áss og vann á beinskeyttan hátt.
Hilmir Freyr vann skemmtilegan sigur en þriðjungur leikja hans fram að 24. leik var leikið með kóng!
Björn Þorfinnsson lagði Halldór Grétar með svörtu en sá síðarnefndi lagði allt í sölurnar.
25.Bc3!! hefði bjargað hvítum fyrir horn. Ef biskupinn er tekinn er þráskák eftir 26.Dd6+ næst!
Úrslit 6. umferðar

Staðan eftir sex umferðir

Pörun 7.umferðar

Í 7. umferð á morgun, laugardaginn 28. nóvember kl. 10:00, mætir Vignir Makedónanum Risteski. Hilmir fær Norðmanninum Kvaløy og Gerghana fær kærastann sinn, Schitco!
Pörun og nánari úrslit má sjá á Chess-Results og heimasíðu mótsins.
















