Tímaritið Skák er komið út! Blaðið er hnausþykkt, stútfullt af toppefni og segja fróðir menn ritstjóra Skák.is að þetta sé besta tölublaðið til þessa.
Áskrifendur, þeir sem vilja vera áskrifendur, eða þeir sem vilja eingöngu kaupa þetta tölublað eru velkomnir í skákhöllina í Faxafenið til að sækja sér eintak um helgina. Í kvöld er Fenið opið til kl. 20, á morgun á milli 10 og 20 og á sunnudaginn á milli 10-14. Heit kaffi á könnunni á skákstað og á sértilboði – frítt!
Aðspurður sagði Gauti Páll, ritstjóri, í viðtali við ritstjóra Skák.is, rétt áður en settist gegn Jósefi Omarssyni á minningarmótinu, vera gríðarlega stoltur af blaðinu að þessu sinni. Gauti er tilbúinn til að árita blaðið fyrir þá sem það vilja.
Þeir sem útgáfudagurinn lendir á þessu sinni á svörtum fössara verður sértilboð á blaðinu um helgina. Aðeins 3.500 kr.
Þeir sem ekki eru áskrifendur en vilja skrá sig sem slíkan er bent á skráningaform.
.















