
Heimsbikarmót FIDE 2025 hafið í Goa
Nú standa yfir seinni skákir í 1. umferð Heimsbikarmótsins í Goa á Indlandi. Í fyrri skák fyrstu umferðar héldu helstu stigahærri keppendur yfirhöndinni og fá óvænt úrslit sáust. Salem A.R. Saleh sýndi glæsilega sóknartilburði í Najdorf sem vakti athygli og hið 14 ára tyrkneska undrabarn Yağız Kaan Erdoğmuş vann með svörtu á 17 leikjum.
Viðureignir fyrstu umferðar eru mismunandi skemmtilegar. Mikið er um svæðis-úthlutuð sæti þar sem menn með niður í 1900 elóstig mæta 2600+ stórmeisturum. Mikið er þó um jafnar viðureignir en verðlaunin fyrir að vinna jafnar viðureignir er að jafnaði einvígi við einhvern af sterkustu skákmönnum heims!
Það helsta úr fyrri skákum í 1. umferð
-
Tran – Saleh: skemmtileg sóknarskák í Najdorf—valin skák dagsins af Chess.com
-
Abugenda – Erdoğmuş: skjótur sigur með svörtu; mát á 17. leik.
Skelfileg taflmennska hjá hvítum í uppskiptum Frakka.
10…Rce5 gaf svörtum vinningsstöðu og hann mátaði í 17. leik, magnað! -
Makhnyov – Flores: skelfilegur afleikur eftir 16…Qd6?? í annars jafnri stöðu.
17.Bf4! og svartur varð að gefa drottningu fyrir tvo menn. -
Cheparinov – Roa: fallegt mát með tveimur riddurum eftir drottningarfórn 32.Qxf7!!
Mátið fylgdi í kjölfarið á g6, fallegt! -
Agibileg – Henríquez: eina verulega óvæntu úrslitin þar sem stigalægri skákmaðurinn vann.
Um mótið
-
Staður/tími: Resort Rio í Goa, 1.–26. nóvember 2025.
-
Fyrirkomulag: 206 keppendur, einvígi í útsláttarkeppni. Hver umferð: tvær kappskákir; ef jafnt er fara einvígi í hraðskákir og síðan bráðabana ef þarf.
-
50 efstu á styrkleikalista sleppa fyrstu umferð og hefja leik í 2. umferð.
-
Verðlaunasjóður: 2 milljónir Bandaríkjadala.
-
Heimsmeistarinn D. Gukesh er efstur að styrkleika og raðað sem nr. 1.
-
Anand-bikarinn: sigurvegarinn fær nýjan bikar nefndum til heiðurs fyrrum heimsmeistaranum Viswanathan Anand.
-
Heimsmeistaraáskorun: þrír efstu á Heimsbikarnum tryggja sér sæti í Áskorendakeppni FIDE 2026.
Næst á dagskrá
Seinni skákir í fyrstu umferð fara fram í dag, sunnudaginn 2. nóvember. Standi einvígi jöfn eftir tvær kappskákir er leikið til þrautar í tiebreak daginn eftir.
Hvar má fylgjast með?
Bein útsending og umfjöllun er á helstu skákmiðlum (m.a. Chess.com/TV, Chess24, Twitch og YouTube). Skákir og niðurstöður birtast jafnóðum á mótasíðum.















