Laugararnar þrjár, Guðlaug Þorsteinsdóttir (2011), Sigurlaug R. Friðþjófsdóttir (1737) og Áslaug Kristinsdóttir tóku þátt í HM öldunga sem fram fór í Gallipoli á Ítalíu 21. október – 1. nóvember.
Þær tefldu allar í ungmennaflokki (50+) en á næsta ári geta þær teflt í eldri flokknum (65+). Laugarnar voru um áratugaskeið hryggjastyggið í ólympíuliði landans. Án efa hefðu fleiri Íslendingar teflt á mótinu nú hafði það ekki rekist á EM taflfélaga.
Guðlaug vann Sigurlaugu í lokaumferðinni og hlaut sex vinninga í umferðunum ellefu. Sigurlaug fékk 5 vinninga og Áslaug var með 4 vinninga. Vonandi halda þær stöllur áfram að tefla og helst að þær gefi í!
- Auglýsing -














