Fjórir eru í hverju liði , nema í stúlknaflokki eru 3 í hverju liði, og hægt að hafa varamenn.
Skráning hér neðst í þessari frétt.
Dagskrá:
Þri 30.sep fyrir hádegi 8:30 – 11:15: 5.-7. bekkur
Umferðir og tímamörk: 6 umferðir, 8min +2sek á leik
Þri 30.sep fyrir hádegi 11:30 – 13:15: 1.–2. bekkur
Umferðir og tímamörk: 5 umferðir, 5min
Þri 30. sep fyrir hádegi 13:30 – 15:00: Stúlkur 5-10. bekkur (3 stúlkur í liði)
Umferðir og tímamörk: 5 umferðir, 8min +2sek á leik
Mið 1.okt fyrir hádegi 08:30 – 11:15: 8.-10. bekkur
Umferðir og tímamörk: 5 umferðir, 8min +2sek á leik
Mið 1.okt fyrir hádegi 11:30 – 13:15: 3.-4. bekkur
Umferðir og tímamörk: 6 umferðir, 8min +2sek á leik
Mæting korter fyrir upphafstíma móts.
Mikilvægt að skólar sendi fullorðinn ábyrgðarmann með sínum krökkum til að hjálpa til við eftirlit og til að halda uppi aga.
Þátttökugjald: 7500kr á sveit, þó aldrei meira en 30.000kr fyrir hvern skóla fyrir öll mótin.
Skráning og mótstjórn:
Umsjónarmenn með skákstarfi í hverjum skóla skrá sínar sveitir hér að neðan. Nemandi má keppa með eldri bekk, en teflir þá ekki með sínum bekk líka. Stúlkur mega þó tefla í opnum flokki og stúlknaflokki.
Skákstjóri verður skákmeistarinn Daði Ómarsson, en skipuleggjandi er skákdeild Breiðabliks. Þeim til aðstoðar verða skákkennarar í Kópavogi og stjórnarmenn skákdeildarinnar.
Skráningu lýkur kl. 12:00 mánudaginn 29. september
Upplýsingar um þegar skráðar sveitir má finna hér: