Sigurvegarar frá 2024

Alþjóðlega Geðheilbrigðisskákmótið 2025.

Alþjóða geðheilbrigðisdagurinn er haldinn 10. október ár hvert og hefur Vinaskákfélagið skipulagt þetta skákmót undanfarin cirka 19 ár, og í samvinnu við Taflfélag Reykjavíkur.

Mótið verður haldið, fimmtudaginn, 9. Október í húsnæði Taflfélags Reykjavíkur að Faxafeni 12 og hefst klukkan 19:30.

Margir af sterkustu skákmönnum landsins hafa mætt á þetta mót.

Tefldar verða 9 umferðir með tímamörkunum 4 mín. + 2 sek.

Skákstjórn verður í höndum TR, En verðlaun og skipulagning í höndum Vinaskákfélagsins.

Hlé verður gert eftir 5 umf. Til að skákmenn geti fengið sér kaffi og meðlæti.

Glæsileg verðlaun verða á mótinu eins og venjulega og vill Vinaskákfélagið þakka Skruddu bókaforlaginu sérstaklega fyrir þeirra þátt í að styrkja félagið með bókagjöfum.

Eftirfarandi verðlaun eru þessi:

  1. Sæti: Gull peningur + Bikar og bók.
  2. Sæti: Silfur peningur + bók.
  3. Sæti: Brons peningur + bók.
  4. Sæti: Kvennaverðlaun: Gull peningur + bók.
  5. Sæti: 50 ára og eldri: Gull peningur + bók.
  6. Sæti: 16 ára og yngri: Gull peningur + bók.

Skráning fer fram á staðnum.

Sigurvegari 2024 var: Vignir Vatnar Stefánsson.

Fólk er beðið um að koma snemma til að skrá sig.

Allir velkomnir!!

- Auglýsing -