Íslandsmót ungmenna (u8-u16) fer fram laugardaginn 29. nóvember í hinu glæsilega íþróttahúsi Miðgarði í Garðabæ. Sunnudaginn, 30. nóvember fer fram Íslandsmót barna- og unglingasveita sem verður nánar kynnt síðar.
Mótið hefst kl. 13 og er teflt í fimm aldursflokkum. Keppendur skulu mæta eigi síðar en kl. 12:40 og staðfesta mætingu. Krýndir verða 10 Íslandsmeistarar – efsti strákur og efsta stelpa í öllum flokkunum fimm.
Afar góð verðlaun verða í boði. Allir Íslandsmeistararnir fá frí þátttökugjöld á Reykjavíkurskákmótið 2026 sem fram fer í Hörpu 25.-31. mars.
8 ára og yngri (f. 2017 og síðar)
Tefldar verða sjö umferðir. Umhugsunartími: 7 + 3 mínútur.
9-10 ára (f. 2015 og 2016)
Tefldar verða sjö umferðir. Umhugsunartími: 7 + 3 mínútur.
11–12 ára (f. 2013 og 2014)
Tefldar verða 7 umferðir með umhugsunartímanum 10 + 2.
13–14 ára (f. 2011 og 2012)
Tefldar verða 7 umferðir með umhugsunartímanum 10 + 5.
15–16 ára (f. 2009 og 2010)
Tefldar verða 7 umferðir með umhugsunartímanum 10 + 5.
Skráning og greiðsla þátttökugjalda
Sportabler – skráning uppfærist daglega á Chess-Results
Skráningafrestur rennur út föstudaginn, 28. nóvember kl. 13
Verðlaun
Verði tveir eða fleiri keppendur jafnir í verðlaunasætum gilda oddastig. Þó skal tefld aukakeppni um Íslandsmeistaratitla í þremur elstu aldursflokknum.
Verðlaunaafhending fer fram að keppni lokinni í hverjum flokki.
Allir Íslandsmeistarar frá frí þátttökugjöld á Reykjavíkurskákmótið 2026
Þrír efstu í öllum flokkum fá verðlaunabikar.
Frekari verðlaun verða kynnt þegar nær dregur.
Allir keppendur verða leystir út með smá glaðningi.
Þátttökugjöld eru kr. 2.000 kr. Systkinaafsláttur er 25%.
Mótið verður reiknað til alþjóðlegra atskák- eða hraðskákstiga eftir því sem við á.
Nánar um oddastig
Allir við alla: 1. Sonneborn-Berger, 2. Innbyrðis úrslit, 3. Fjöldi sigra 4. Hlutkesti
Opnir flokkar: 1. Buchols (-1), 2. Buchols, 3. Innbyrðis úrslit, 4. Sonneborn-Berger 5. Fjöldi vinningsskáka 6. hlutkesti















