Ingvar Þór og Björn Ívar fá að dusta af sér ferðarykið eftir EM-ungmenna í Buva áður en þeir snúa aftur í stúdíóið.

Átta manna úrslitum Íslandsmóts Símans, sem er skipulagt af Rafíþróttasambandi Íslands í samstarfi við Skáksamband Íslands og Sjónvarp Símans lýkur á sunnudaginn 9. nóvember  með tveimur viðureignum. Þemað er stórmeistarar gegn Akureyringum!

Í fyrri viðureignn kvöldsins mætir stórmeistarinn Jóhann Hjartarson Akureyringnum og FIDE-meistaranum Símoni Þórhallssyni. Sigurvegari þeirra viðureignar mætir Braga Þorfinnssyni í undanúrslitum.

Í seinna einvíginu mætir stórmeistarinn Helgi Áss Grétarsson FIDE-meistaranum og norðanmanninum Jón Kristini Þorgeirssyni. Siguvegarinn mætir Vigni Vatnari Stefánssyni í undanúrslitum.

Tefdar eru sex skákir og sá vinnur sem fyrr nær 3½ vinningi. Verði jafnt 3-3 – verður teflt til þrautar með skemmri umhugsunartíma.

Lýsendur á sunnudaginn verða alþjóðlegu meistararnir Hilmir Freyr Heimisson og Björn Þorfinnsson.

Hægt er að fylgjast með á Sjónvarpi Símans eða á YouTube rás RÍSÍ eða Twitch Rási RÍSÍ

Einvígin eru á Lengjunni

Hlé verður 16. nóvember vegna Íslandsmóts skákfélaga. Undanúrslit og úrslit fara fram 23. og 30. nóvember.

Átta manna úrslit

  1. 2. nóvember: GM Vignir Vatnar Stefánsson – FM Ingvar Þór Jóhannesson 3,5-0,5
  2. 2. nóvember: GM Bragi Þorfinnsson – IM Björn Þorfinnsson 4-0
  3. 9. nóvember: GM Helgi Áss Grétarsson – FM Jón Kristinn Þorgeirsson
  4. 9. nóvember: GM Jóhann Hjartarson – FM Símon Þórhallsson

Undanúrslit

  1. 23. nóvember: GM Bragi Þorfinnsson – GM Jóhann/FM Símon
  2. 23. nóvember: GM Vignir Vatnar Stefánsson – GM Helgi Áss/FM Jón Kristinn

Úrslit

  1. 30. nóvember: GM Bragi Þorfinnsson – GM Jóhann/FM Símon – GM Vignir Vatnar Stefánsson – GM Helgi Áss/FM Jón Kristinn

Dagskrá

Mótið fer fram á sunnudögum frá 7. september til 30. nóvember 2025, samkvæmt eftirfarandi dagskrá:

  1. 7. september 2025: Netskák dagur 1 (16 manna úrslit, 6 skákir)
  2. 14. september 2025: Netskák dagur 2 (16 manna úrslit, 6 skákir)
  3. 21. september 2025: Netskák dagur 3 (16 manna úrslit, 6 skákir)
  4. 28. september 2025: Netskák dagur 4 (16 manna úrslit, 6 skákir)
  5. 2. nóvember 2025: Netskák dagur 5 (8 manna úrslit, 6 skákir)
  6. 9. nóvember 2025: Netskák dagur 6 (8 manna úrslit, 6 skákir)
  7. 23. nóvember 2025: Netskák dagur 7 (undanúrslit, 6 skákir)
  8. 30. nóvember 2025: Netskák dagur 8 (úrslit, 10 skákir)

Tímamörk verða 3+2 og nákvæmar tímasetningar útsendinga verða tilkynntar síðar. Mótið fylgir útsláttarfyrirkomulagi, þar sem keppendur detta út eftir tap þar til einn stendur uppi sem sigurvegari.

Verðlaun

Verðlaunafé mótsins hefur verið hækkað um 100.000 kr. og er nú sem hér segir:

  1. 200.000 kr.
  2. 100.000 kr.
  3.   25.000 kr.
  4.   25.000 kr.
- Auglýsing -