Jólapakkaskákmót Taflfélags Garðabæjar verður laugardaginn 13. desember næstkomandi í Miðgarði í Garðabæ. Yngri flokkar kl. 10:00 og eldri kl. 14:00
Amk. 3 jólapakkar verða í verðlaun fyrir bæði stráka og stelpur í hverjum flokki auk amk. 3 happdrættisvinninga og er reiknað með að keppt verði í allt að 6 aldursflokkum auk peðaskákar fyrir þau yngstu. Allir keppendur fá glaðning að móti loknu að venju.
Tímamörk 7 mínútur á skák. Reiknað er með 5 umferðum í hverjum flokki.
- A flokkur börn og unglingar fædd 2010 til 2012. kl. 14.00
- B flokkur börn fædd 2013 til 2014 kl. 14.00
- C flokkur börn fædd 2015 til 2016 kl. 14:00
- D flokkur börn fædd 2017. kl. 10:00
- E flokkur börn fædd 2018 kl. 10:00
- F flokkur börn fædd 2019 og yngri. kl.10:00.
- Peðaskák kl. 10:15 er svo tilvalin fyrir börn sem kunna ekki að máta.
Skráningu lýkur kl. 10.00 föstudaginn 12. desember. Þátttökugjöld 1500 kr. Óskast millifært á reikning TG. kt: 4911952319 rnr: 546-26-2124.
Nánari upplýsingar í með því að senda póst á tg@tafl.is
Mótsstaður: Miðgarður, fjölnota íþróttahús, Vetrarmýri 18, Garðabæ
Hlökkum til að sjá ykkur!!!!!













